Fara í efni
Umræðan

Verðlaunahátíð Þórs haldin í dag, 6. janúar

Íþróttafólk Þórs árið 2024 sem heiðrað var á þrettándanum í fyrra: Rafíþróttamaðurinn Alfreð Leó Svansson og Sandra María Jessen, landsliðskona í knattspyrnu. Mynd: Þorgeir Baldursson

Venju samkvæmt er verðlaunahátíð Íþróttafélagsins Þórs haldin í upphafi árs, þar sem m.a. kjöri íþróttafólks félagsins verður lýst og afreksfólk heiðrað. Samkoman er í félagsheimilinu Hamri og hefst kl. 17 í dag, þriðjudaginn 6. janúar.

Eftir því sem fram kemur á vefsíðu Þórs verður dagskráin með hefðbundndu sniði. Íslandsmeistarar og landsliðsfólk félagsins verður heiðrað, íþróttafólk hverrar deildar kynnt og heiðrað og kjöri lýst á íþróttafólki Þórs. Þá verður látinna félaga minnst og ýmis önnur ávörp flutt.

Inn á milli atriða verður tónlistarflutningur og boðið verður upp á léttar veitingar. Félagið hvetur Íslandsmeistara og landsliðsfólk til að mæta á athöfnina, sem og alla iðkendur, félagsfólk og velunnara.

Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 21:30

Hvernig verður Akureyri svæðisborg?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 06:00

Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?

Jón Bjarnason skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 06:00

Framboð sem byggir á trú á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 11:30

„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli

Karl Ingólfsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 16:30

Hreint ekki eins og atvinnuviðtal

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 13:00