Fara í efni
Umræðan

Mikilvægir leikir hjá Akureyrarliðunum

Þórsarinn Brynjar Hólm Grétarsson í skotstöðu gegn Bruno Bernat, markmanni KA, í fyrri deildarleik Akureyrarliðanna í vetur. Liðin verða bæði í eldlínunni í kvöld og mætast svo á fimmtudaginn, í lokaumferð deildarinnar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Upp er runnin mikilvæg vika hjá karlaliðum Akureyrar í handboltanum. Bæði eiga þau leik í kvöld, mánudagskvöld, og mætast svo í lokaumferðinni á fimmtudagskvöld í Höllinni. KA fær FH í heimsókn í kvöld og Þór sækir Aftureldingu heim í Mosfellsbæ.

KA er í hörkubaráttu rétt neðan við toppliðin, situr í 4. sætinu með 26 stig, en Haukar þar fyrir ofan með 28 stig og FH með 29. Fast á hæla KA koma ÍBV og Afturelding með 25 stig og svo Fram með 24. Hvert stig er því dýrmætt í lokaumferðunum tveimur.

  • Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
    KA-heimilið kl. 19:30
    KA - FH
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Fyrri leikur þessara liða í vetur fór ekki vel fyrir KA; FH sigraði með 13 marka mun í Kaplakrika, 45:32.

_ _ _

Þórsarar eru í harðri baráttu á hinum enda töflurnar; þeir eiga enn tölfræðilega möguleika á áttunda sætinu, sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppninni, en baráttan stendur líka um að forðast tvö neðstu sæti deildarinnar, fallsæti og umspilssæti.

Þegar tveimur umferðum er ólokið er HK í 8. sæti með 14 stig, Þór í 9. sæti með 11 stig, eins og Selfoss sem telst í 10. sætinu og Stjarnan er í 11. sætinu með 10 stig. ÍR er á botninum með 7 stig. 

  • Olísdeild karla í handknattleik, 21. umferð
    Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 19:30
    Afturelding - Þór
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Fyrri viðureign Þórs og Aftureldingar í vetur var hörkuleikur þar sem liðin skildu jöfn í Höllinni á Akureyri, 23:23, í nóvember.

Vert er að nefna að tvö neðstu lið deildarinnar mætast í kvöld. ÍR fær Stjörnuna í heimsókn og ÍR-ingar verða að vinna til að halda í vonina um áframhaldandi veru í deildinni.

Okkar jörð - okkar kraftur

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifa
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð

Ásthildur Sturludóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:30

Einföldum kerfið og lækkum leikskólagjöld

Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:20

Grípur kerfið barnið?

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:15

Hlíðarfjall – gullkista Akureyrar

Kristrún María Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:00