Fara í efni
Umræðan

Stórsigur gegn KV og Þór áfram í 2. sætinu

Chloe Wilson í baráttu undir körfu KV í fyrri leik liðanna í vetur. Chloe skoraði 31 stig í gær og tók 13 fráköst. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Kvennalið Þórs í körfuknattleik er áfram í 2. sæti 1. deildarinnar eftir stórsigur á liði KV á útivelli í gær, 115-72. 

Það varð snemma ljóst í hvað stefndi. Þórsliðið skoraði fyrstu 24 stig leiksins og fyrsti leikhluti meira en hálfnaður áður en heimakonur minnkuðu muninn í 3-24. Munurinn 18 stig eftir fyrsta leikhlutann og 41 stig eftir fyrri hálfleikinn. Seinni hálfleikurinn var jafnari, en munurinn að lokum 43 stig. Tvær í Þórsliðinu, Chloe Wilson og Yvette Adriaans, náðu tvöfaldri tvennu, það er tveggja stafa tölu í tveimur tölfræðiþáttum leiksins. 

KV - Þór (12-30) (14-37) 26-67 (20-25) (26-23) 72-115

Chloe Wilson var eins og oftast áður stigahæst í Þórsliðinu, skoraði 31 stig og tók að auki 13 fráköst. Emilie Ravn skoraði 24 stig. Yvette Adriaans skoraði 13 stig og tók 11 fráköst. 

Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Chloe Wilson 31/13/3 - 42 framlagspunktar 
  • Emilie Ravn 24/5/4
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir 17/8/5
  • Karen Lind Helgadóttir 15/5/0
  • Yvette Adriaans 13/11/5
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir 9/2/3
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir 6/0/0
  • María Sól Helgadóttir 0/4/4

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Yvette Adriaans í fyrri leik liðanna í vetur. Yvette skoraði 13 stig og tók 11 fráköst í leiknum í gær, náði tvöfaldri tvennu eins og Chloe Wilson. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Aþena er í efsta sæti deildarinnar, en efsta liðið fer beint upp um deild. Aþena hefur unnið 15 leiki og tapað einum. Þór hefur leikið einum leik færra, er með 13 sigra og tvö töp, en næst er Fjölnir með 13 sigra og þrjú töp.

Leikirnir sem toppliðin eiga efitir:

  • Aþena: Stjarnan b (h), Njarðvík b (h)
  • Þór: Vestri (h), Selfoss (ú), Snæfell (h)
  • Fjölnir: Snæfell (h), Stjarnan b (ú)

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00