Fara í efni
Umræðan

Veðurviðvaranir í gildi víða um land um helgina

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular veðurviðvaranir víða um land í dag og á morgun. Gul viðvörun tekur gildi fyrir Norðurland eystra kl. 6 í fyrramálið og stendur fram á aðra nótt. Viðvaranir eru einnig í gildi á vestanverðu landinu og hálendinu í dag.

Veðurspá sem gefin var út núna sídegis gerir ráð fyrir sunnan og suðaustan 15-25 m/sek. Hvassast verður vestanlands. Víða fylgir talsverð rigning, en þurrt að mestu norðaustantil. Hiti 6 til 12 stig. Vindur snýst í aðeins hægari suðvestanátt með skúrum í nótt. Gengur í sunnan og suðvestan 18-25 m/sek. með rigningu upp úr hádegi á morgun, en skúrir annað kvöld.

Gul veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra tekur gildi kl. 6 í fyrramálið: „Suðvestan 15-23 m/s, hvassast vestantil. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið,“ segir í viðvöruninni fyrir Norðurland eystra.

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00