Fara í efni
Umræðan

Stórstreymt í kvöld og óhagstæð vindátt

SEPTEMBER 2022 – Skarð var rofið til að hleypa vatni af Kaldbaksgötu og Strandgötu út í tjörnina ofan við Oddeyrarbryggju. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Talið er mögulegt að sambærilegar aðstæður skapist í kvöld og í september 2022 þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli þar miklu tjóni. Veðurspá er slæm fyrir kvöldið og fram á nótt og neyðarstjórn Norðurorku hefur því verið í viðbragðsstöðu í dag og gær, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins. Spáð er hárri sjávarstöðu rétt eftir miðnætti og óhagstæðri vindátt og starfsfólk Norðurorku „fylgist grannt með aðstæðum fram eftir kvöldi og fram yfir miðnætti,“ segir á vef fyrirtækisins.

„Hlutverk Norðurorku í kvöld, líkt og alla aðra daga ársins, er fyrst og fremst að tryggja að fráveitan sinni sínu hlutverki eins vel og mögulegt er. Það er talið nokkuð öruggt að fráveitan muni ekki hafa undan ef sjór gengur á land líkt og gerðist haustið 2022, þar sem fráveitukerfið er ekki hannað fyrir slíkar aðstæður,“ segir á vef Norðurorku. 

„Sem fyrr segir hvetur Norðurorka alla Akureyringa til að huga vel að niðurföllum og þá eru fasteignaeigendur á Eyrinni sérstaklega hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna veðursins.“

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00