Fara í efni
Umræðan

Um málefni barna með fötlun á Akureyri

Opið bréf til frambjóðenda til bæjarstjórnarkosninga.

Kæri frambjóðandi

Ég skrifa hér til þín sem móðir 10 ára drengs með einhverfu. Drengurinn minn þarf meiri umönnun og fyrirsjáanleika heldur en ófatlaðir jafnaldrar hans. Hann á einnig í erfiðleikum með félagsleg samskipti og einangraðri heldur en aðrir á hans aldri.

Drengurinn minn á jafnframt rétt á liðveislu og hefur hann verið á biðlista eftir henni síðan hann var 6 ára gamall, fyrir utan 3 mánuði þar sem hann var með liðveitanda. Hvað ætlar þú – kæri frambjóðandi – að gera til að fá fleiri einstaklinga í þetta mikilvæga starf, viðhalda stöðugleika í því og útrýma biðlistanum? Starf liðveitanda snýst fyrst og fremst um að rjúfa félagslega einangrun fólks og gera eitthvað skemmtilegt saman. Minn drengur hefði svo sannarlega gaman af einhverju slíku og sérstaklega því, að vera ekki alltaf, bara með mömmu og pabba.

Drengnum mínum líður best í röð, reglu og rútínu og hefur sumarfríið verið honum áskorun, sérstaklega ágústmánuður. Undanfarin ár hefur Akureyrarbær boðið upp á sumarfrístund fyrir börn með fötlun og aðrar áskoranir, í úrræði sem nefnist Kapparnir. Þetta námskeið er frábært og virkilega vel af því staðið. Þegar við sóttum fyrst þetta úrræði, var í boði að velja 6 vikur en nú í sumar og það síðasta, var einungis í boði að velja 4 vikur. Því hefur barnavæna sveitarfélagið Akureyri, sem kynnir sig sem í fararbroddi í þágu farsældar barna og vinnu við innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, skert þjónustu við börn með fötlun. Ég myndi í fyrsta lagi vilja, að fleiri vikur væru í boði yfir sumarið þar sem sumarfrí grunnskólanna er um 11 vikur. Fyrir þennan hóp barna er erfitt að vera svo lengi án fastrar rútínu og álag á stórfjölskylduna að halda uppi slíkri dagskrá.

Því langar mig að spyrja – kæri frambjóðandi – hvað þinn framboðslisti hefur hugsað sér að gera til að koma til móts við börn með fötlun þegar kemur að ofantöldu? Má búast við bótum mála, ef þinn flokkur kemst í bæjarstjórn?

Til að ljúka þessu á jákvæðu nótunum þá langar mig að minna á verkefnið Allir með sem íþróttahreyfingin hér á Akureyri hefur unnið að. Það er virkilega vel unnið og til fyrirmyndar. Ég myndi vilja sjá Akureyrarbæ setja meira fjármagn til íþróttafélaganna fyrir börn með fötlun svo þau geti æft íþróttir í meira mæli.

Hanna Rós Jónasdóttir er móðir

Félagsleg tengsl eru grunnur að velferð

Íunn Eir Gunnarsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 15:00

Gott að eldast á Akureyri

Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar
13. maí 2026 | kl. 13:15

Velkominn í Disneyland

Kjartan Benediktsson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:45

Okkar skilaboð til fatlaðra íbúa og aðstandenda

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
13. maí 2026 | kl. 12:30

Hreinn bær, fagur bær

Þórhallur Harðarson skrifar
13. maí 2026 | kl. 12:15

Bútasaumsteppið Akureyri

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Hafsteinn Árnason skrifa
13. maí 2026 | kl. 11:00