Fara í efni
Umræðan

Túfa þjálfar KA og samið við Hansen

Srdjan Tufegdzic og Nikolaj Hansen voru kynntir til leiks hjá KA í hádeginu. Mynd: KA

Srdjan Tufegdzic hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu á ný. Ráðning hans var tilkynnt í hádeginu og þá var einnig greint frá því að KA hefur samið við danska framherjann Nikolaj Hansen, sigursælasta erlenda leikmann sem spilað hefur með íslenskum félagsliðum. Báðir skrifuðu undir þriggja ára samnig.

  • Tufegdzic – alltaf kallaður Túfa – kom upphaflega til KA sem leikmaður árið 2006, varð aðstoðarþjálfari liðsins 2012 og aðalþjálfari frá 2015 til hausts 2018. KA vann sér sæti í efstu deild á ný undir stjórn Túfa með yfirburðasigri í næst efstu deild árið 2016 eftir 12 ára fjarveru.
  • Nikolaj, sem hefur leikið með Víkingi frá 2017 og var þar áður með Val, hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og jafn oft bikarmeistari. 

Túfa hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðunni, æðstu gráðu sem þjálfarar í knattspyrnuheiminum geta sótt sér, segir á vef KA. „Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að Túfa sé nú mættur aftur til KA en hann er gríðarlega metnaðarfullur og leggur sig ávallt allan fram við að ná markmiðum sínum,“ segir þar. „Túfa er ákaflega vel liðinn innan félagsins og mótaði hann ansi marga iðkendur, bæði stráka og stelpur, innan félagsins á sínum tíma. Við treystum honum svo sannarlega til þess að stýra KA aftur upp í deild þeirra bestu og hlökkum mikið til að vinna aftur með þessum frábæra karakter.“

Nikolaj Hansen varð bæði markahæsti leikmaður Íslandsmótsins og valinn besti leikmaður Bestudeildarinnar sumarið 2021. „Hann var í algjöru lykilhlutverki í upprisu Víkingsliðsins sem náði einnig stórkostlegum árangri í Sambandsdeild UEFA. Á yngri árum lék hann með Benløse IF og Ringsted IF áður en hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá FC Vestsjælland og HB Køge,“ segir á vef KA.

„Það er gríðarlega stórt að fá Nikolaj norður í gult og blátt og skýr skilaboð um að félagið ætlar sér strax aftur í deild þeirra bestu eftir vonbrigði sumarsins. Það er von okkar að gæði og reynsla Nikolaj muni bæði skila sér inn á vellinum sem og í því verkefni okkar að þróa áfram hina mörgu ungu og efnilegu leikmenn félagsins.“

  • Nánar á vef KA um ráðningu Túfa:

Túfa snýr aftur heim og tekur við stjórn KA-liðsins

  • Nánar á vef KA um Nikolaj Hansen:

Nikolaj Hansen í raðir KA

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20