Ásbjörn skoraði í jafntefli við meistarana
Íslendingar gerðu 2:2 jafntefli við Spánverja í gær í fyrsta leik annarrar umferðar undankeppni Evrópumóts U19 landsliða í knattspyrnu. Staðan var 2:0 fyrir Spánverja en Íslendingar skoruðu í tvígang með skömmu milli í seinni hálfleik; það var Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson sem jafnaði metin með marki á 77. mín.
Leikið er í fjögurra liða riðlum víða í Evrópu þessa dagana, Ísland er í riðli með Spáni, Finnlandi og Wales í borginni Newport í Wales. Þrjú lið komast áfram í þriðju og síðustu umferðina.
Jafntefli verða að teljast frábær úrslit því Spánverjar eru í fremstu röð eins og alkunna er og ríkjandi Evrópumeistarar í aldursflokknum. Þeir hafa raunar leikið til úrslita í síðustu þrjú skipti; urðu meistarar eftir sigur á Norður-Írum 2024, töpuðu úrslitaleik fyrir Hollendingum 2025 og unnu Þjóðverja í úrslitaleik fyrr á þessu ári.
Sigurður Jökull Ingvason stóð í marki Íslands í gær og Egill Örn Arnarsson var vinstri bakvörður. Báðir eru Þórsarar en leikmenn U19 liðs Midtjylland í Danmörku. Þórsarinn Ásbjörn Líndal, sem gerði seinna mark Íslands, var miðvörður í hjarta varnarinnar og aftast á miðsvæðinu léku hlið við hlið KA-maðurinn Snorri Kristinsson og fyrirliðinn Einar Freyr Halldórsson, leikmaður Þórs. Á hægri kantinum var Þorri Ingólfsson, Víkingurinn sem lék með Þór seinni hluta nýliðins Íslandsmóts. Þórsarinn Sverrir Páll Ingason var á meðal varamanna.
Spánn náði forystu snemma leiks með marki Alexis Ciria, leikmanns varaliðs Real Madrid, úr vítaspyrnu og Egill Örn varð fyrir óláni að gera sjálfsmark á 35. mín. Renndi sér í boltann eftir fyrirgjöf, hugðist koma honum aftur fyrir endamörk en boltinn endaði í netinu án þess að Sigurður Jökull fengi rönd við reist.
Akurnesingurinn Gabríel Snær Gunnarsson, sem er samningsbundinn Elfsborg í Svíþjóð, gerði fyrra mark Íslands á 72. mínútu og varnarmaðurinn Ásbjörn Líndal jafnaði fimm mín. síðar með þrumuskoti úr miðjum vítateignum eftir laglegt spil í kjölfar hornspyrnu.
Wales og Finnland gerðu einnig 2:2 jafntefli í gær þannig að öll liðin eru með eitt stig. Íslendingar mæta Finnum næst, á laugardaginn, og síðasti leikurinn er gegn heimamönnum í Wales þriðjudaginn 17. nóvember.
- Nýtt fyrirkomulag var tekið upp fyrir undankeppni Evrópumóts U19 landsliða að þessu sinni. Þrjár umferðir fara fram; sú fyrsta var leikin í vor þegar Ísland vann sig upp úr B-deild.
- Önnur umferð undankeppninnar er nú í gangi. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli verða áfram í A-deild í þriðju og síðustu umferðinni.
- 28 lið taka þátt í þriðju umferðinni, dregið verður 10. desember og leikið í vor. Þá fæst úr því skorið hvaða sjö þjóðir taka þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins ásamt Tékkum, en keppnin verður í Tékklandi frá 18. júní til 1. júlí á næsta ári.
Frétt akureyri.net í síðustu viku: Þórsarar áberandi í U19 landsliðinu
Icelandair ætti að horfa norður
Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar