Fara í efni
Umræðan

KA/Þór gegn Fram, handbolti og karfa úti

Heimaleikur í handbolta og útileikir í handbolta og körfubolta eru á dagskrá Akureyrarliða í kvöld. KA/Þór fær Fram í heimsókn, karlalið Þórs í körfubolta sækir KV heim og karlalið KA í handbolta sækir botnlið Selfyssinga heim.

  • Eftir tvo sigra hjá KA/Þór í röð, þá fyrstu sem liðið náði á leiktíðinni, kom fjögurra marka tap fyrir Selfyssingum í 8. umferð Olísdeildar kvenna um síðastliðna helgi. KA/Þór tekur á móti Fram í kvöld í 9. umferð deildarinnar. Fram vann ÍR með sjö marka mun í síðasta leik sínum. KA/Þór er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig, en Fram í því fjórða með tíu stig.
  • Karlalið Þórs í körfubolta náði sínum öðrum sigri þegar liðið tók á móti KFG um síðastliðna helgi, lokatölurnar 106-102. Þór sækir KV heim í 7. umferðinni í kvöld. KV hefur unnið þrjá leiki af fyrstu sex og situr í 7. sætinu, en Þór er í 9. sætinu með tvo sigra. KV vann Fjölni á útivelli í síðustu umferð, 96-89.
  • Karlalið KA í handbolta sækir Selfyssinga heim í 10. umferð Íslandsmótsins í kvöld. KA tapaði með sjö marka mun fyrir Haukum í síðustu umferð, 30-37. Í sömu umferð máttu Selfyssingar þola 12 marka tap á útivelli gegn HK, 34-22. KA er í 4. sæti deildarinnar með 12 stig efitr fyrstu níu umferðirnar, en Selfyssingar eru í botnsætinu með eitt stig.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 9. umferð
    KA-heimilið kl. 19
    KA/Þór - Fram

  • Körfubolti
    Bæjarins bezta deild karla, 7. umferð
    Meistaravellir kl. 19:15
    KV - Þór

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 10. umferð
    Set-höllin á Selfossi kl. 20:15
    Selfoss - KA

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20