Handbolti: KA/Þór tapaði á Selfossi
KA/Þór tapaði 26:22 gegn Selfyssingum á útivelli í gær í 8. umferð efstu deildar kvenna í handknattleik, Olísdeildinni. Selfyssingar voru með forystuna nánast frá upphafi og munurinn varð mestur 11 mörk í seinni hálfleik.
Nokkurt jafnræði var með liðunum lengst af fyrri hálfleiks en heimaliðið þó yfirleitt 1-2 mörkum á undan. Með góðum lokakafla á síðustu 5 mínútum hálfleiksins, þegar staðan breyttist úr 11:9 í 15:10, náðu þær selfyssku að fara með gott forskot inn í leikhléið.
Sóknarleikurinn hjá KA/Þór gekk bölvanlega framan af seinni hálfleik og um miðjan hálfleikinn var heimaliðið komið með yfirburðaforskot, 24:13. KA/Þór náði aðeins að skora þrjú mörk á fyrstu 17 mínútum hálfleiksins en síðan komu fimm mörk í röð á skömmum tíma, sem lagaði stöðuna talsvert. Forskot heimaliðsins var hins vegar orðið of stórt til að sigurinn væri í einhverri hættu. Lokatölur 26:22 og mikilvægur sigur nýliða Selfyssinga í höfn, sem þar með tryggðu stöðu sína í 6. sæti deildarinnar með 7 stig og slitu sig aðeins frá neðstu liðunum fjórum. KA/Þór er í 7.-8. sæti með 4 stig eftir fyrstu 8 umferðirnar en litlu munar á neðstu liðum og því hvert stig dýrmætt í innbyrðisviðureignum þeirra.
Níunda umferðin verður leikin í vikunni og að henni lokinni er deildarkeppnin hálfnuð. KA/Þór tekur þar á móti Fram í KA-heimilinu á föstudagskvöldið kl. 19.
Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 6, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Lydía Gunnþórsdóttir 5 (3 víti), Herdís Eiríksdóttir 2, Joan Rúnadóttir Johannessen 2, Hafrún Linda Guðmundsdóttir 1, Lenka Ratvajská 1.
Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 7 (1 víti), Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 6 (1 víti).
Mörk Selfoss: Hulda Hrönn Bragadóttir 7, Perla Ruth Albertsdóttir 6, Eva Lind Tyrfingsdóttir 5, Hulda Dís Þrastardóttir 3 (3 víti), Harpa Valey Gylfadóttir 2, Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir 1, Selma Þóra Jóhannsdóttir 1, Sylvía Bjarnadóttir 1.
Varin skot: Selma Þóra Jóhannsdóttir 16.
Framtíð, atvinna og velferð í verki
Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar
Áframhaldandi skilningsleysi nýliða
Látum Loftbrúna vera