Fara í efni
Umræðan

Þorsteinn í „fótspor“ föðurins 74 árum síðar

Þorsteinn Hjaltason, til vinstri, og Erwin van der Werve á fleygiferð í Skautahöllinni á Akureyri í gærkvöldi. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Akureyringurinn Þorsteinn Hjaltason varð Íslandsmeistari í 500 m skautahlaupi í gærkvöldi þegar Íslandsmót í greininni hófst í Skautahöllinni á Akureyri. Gaman er að geta þess að faðir hans, Hjalti Þorsteinsson, var í hópi bestu skautahlaupara landsins á sinni tíð og með sigrinum í gærkvöldi fetaði Þorsteinn í fótspor föðurins – eða renndi sér í skautaför hans – því Hjalti varð Íslandsmeistari í sömu vegalengd fyrir 74 árum, árið 1952, þegar Skautamót Íslands fór fram á Melavellinum í Reykjavík.

Keppendur í 500 m hlaupinu í gær voru aðeins tveir, Þorsteinn og Erwin van der Werve, sem hefur verið sá besti hérlendis undanfarin ár. Erwin, sem er þjálfari í skautahlaupi hjá Skautafélagi Akureyrar, sigraði í 500 m hlaupinu síðustu tvö ár en Þorsteinn varð þriðji í fyrra, þegar hann keppti í fyrsta sinn.

Íslandsmótið heldur áfram í Skautahöllinni á Akureyri í dag þegar keppni hefst á listskautum og keppt verður í lengri vegalengdum í skautahlaupi. Mótinu lýkur á morgun, sunnudag. Ókeypis aðgangur er inn á mótið alla keppnisdagana.

Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir

Páll Kristjánsson skrifar
25. nóvember 2026 | kl. 10:00

Talaðu niður atvinnugreinina, hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
23. nóvember 2026 | kl. 14:15

Ingvexit?: Þegar þingmenn gleyma kjósendum sínum

Axel Björnsson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:45

Við eigum að vera við stýrið!

Svava Björk Ólafsdóttir skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:15

Erum við ekki í sama liði?

Þorleifur Ananíasson skrifar
16. nóvember 2026 | kl. 06:00

Tíu milljarða halli

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
15. nóvember 2026 | kl. 11:45