Fara í efni
Umræðan

Þór/KA – Komnar og farnar fyrir tímabilið

Arna Sif Ásgrímsdóttir kom heim í Þór/KA á ný í vetur. Hér er hún í æfingaleik gegn FHL á dögunum, sameiginlegu liði Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis. Myndir: Ármann Hinrik

Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi knattspyrnuliðs Þórs/KA fyrir átökin í efstu deild kvenna, Bestu deildinni, í sumar. Þar munar auðvitað mest um Söndru Maríu Jessen, sem gekk til liðs við Köln í Þýskalandi síðasta sumar. Eftir síðasta tímabil gengu þær Sonja Björg Sigurðardóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir til liðs við Val en þær voru búnar að festa sig í sessi sem máttarstólpar hjá Þór/KA. Þá verða þær Ellie Moreno og Jessica Berlin ekki áfram með liðinu.

Í stað Ellie og Jessicu hefur Þór/KA samið við þær Erin Flurey og Allie Augur en stærstu tíðindin hljóta þó að vera „heimkoma“ Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur. Þá hefur liðið einnig fengið þrjá leikmenn frá Tindastóli og einn frá Völsungi.

Ein skipti eru þó enn ónefnd en liðið mætir nú til leiks með nýjan þjálfara. Jóhann Kristinn Gunnarsson, sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár, er tekinn við Þrótti og í stað hans samdi Þór/KA við Aðalstein Jóhann Friðriksson. Aðalsteinn hefur þjálfað Völsung á Húsavík undanfarin ár, bæði karla- og kvennalið, og náð eftirtektarverðum árangri.

Markvörðurinn Allie Augur, til vinstri, og framherjinn Erin Flurey komu báðar til Þórs í vetur frá Bandaríkjunum.

Ekki hefur verið lokað fyrir félagaskipti ennþá, þannig að liðin geta gert fleiri breytingar á leikmannahópum sínum.

Vefsíðan fotbolti.net hefur tekið saman heildarlista yfir leikmenn sem hafa komið og farið frá liðunum í deildinni frá síðasta tímabili:

KOMNAR Í ÞÓR/KA

Arna Sif Ásgrímsdóttir frá Val
Halla Bríet Kristjánsdóttir frá Völsungi
Elísa Bríet Björnsdóttir frá Tindastóli
Birgitta Rún Finnbogadóttir frá Tindastóli
María Dögg Jóhannesdóttir frá Tindastóli
Erin Flurey frá Bandaríkjunum
Allie Augur frá Bandaríkjunum

FARNAR FRÁ ÞÓR/KA

Sandra María Jessen til Köln
Sonja Björg Sigurðardóttir í Val
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í Val
Ellie Moreno
Jessica Berlin
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni frá Stjörnunni)
Eva Rut Ásþórsdóttir í Fylki
Krista Dís Kristinsdóttir í Fram

Þarf kosningaskrifstofu til að eiga samtal?

Frambjóðendur Viðreisnar á Akureyri skrifar
24. apríl 2026 | kl. 19:00

Þarfir eldri borgara í Akureyrarbæ í forgang

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
24. apríl 2026 | kl. 12:30

Börn eiga rétt á því sem virkar

Alfa Jóhannsdóttir skrifar
24. apríl 2026 | kl. 10:30

Verk að vinna

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
23. apríl 2026 | kl. 06:00

Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifa
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Okkar jörð - okkar kraftur

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 18:00