Fara í efni
Umræðan

Liði Þórs/KA spáð 7. sæti í Bestu deildinni

Þær leika án efa stór hlutverk í liði Þórs/KA í sumar eins og undanfarin ár. Frá vinstri: Margrét Árnadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir. Myndir: Ármann Hinrik

Fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn liðanna í efstu deild kvenna í knattspyrnu, Bestu deildinni, spá Þór/KA 7. sæti í deildinni, líkt og í fyrra. Keppni í deildinni hefst í kvöld með tveimur leikjum en Þór/KA tekur á móti FH í 1. umferðinni á nýja gervigrasvellinum á Þórssvæðinu á morgun, laugardag, kl. 16.

Hin árlega spá var opinberuð á kynningarfundi deildarinnar á dögunum og samkvæmt henni mun Breiðablik verja Íslandsmeistaratitil sinn en fram og Grindavík/Njarðvík er spáð falli úr deildinni.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, taldi í samtali við RUV eftir að spáin var gerð opinber að líklega væri hún byggð á tímabilinu í fyrra. „Spá er bara spá og við ætlum að sjálfsögðu að afsanna það. Við ætlum ekki að vera í 7. sæti,“ segir Aðalsteinn í viðtalinu. Hann fór yfir leikmannabreytingar frá síðasta tímabili og segir að þeim finnist hópurinn vera sterkari og breiðari núna. „Við erum að reyna að breyta um leikstíl. Okkur langar að skora mörk og það er draumur hjá mér að vera með lið sem getur skorað mörk,“ segir Aðalsteinn og bætir við að umfram allt eigi að vera gaman og ætlunin sé að skemmta áhorfendum með því að skora eitthvað af mörkum, þó að auðvitað sé líka mikilvægt að verjast vel.

Samkvæmt áðurnefndri spá verður þetta lokastaðan í efstu deild kvenna í knattspyrnu, Bestu deildinni, árið 2026:

1. Breiðablik
2. FH
3. Þróttur R.
4. Víkingur R.
5. Stjarnan
6. Valur
7. Þór/KA
8. ÍBV
9. Fram
10. Grindavík/Njarðvík

Þarf kosningaskrifstofu til að eiga samtal?

Frambjóðendur Viðreisnar á Akureyri skrifar
24. apríl 2026 | kl. 19:00

Þarfir eldri borgara í Akureyrarbæ í forgang

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
24. apríl 2026 | kl. 12:30

Börn eiga rétt á því sem virkar

Alfa Jóhannsdóttir skrifar
24. apríl 2026 | kl. 10:30

Verk að vinna

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
23. apríl 2026 | kl. 06:00

Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifa
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Okkar jörð - okkar kraftur

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 18:00