Nýr gervigrasvöllur Þórs tekinn í notkun
Fyrsti opinberi keppnisleikurinn á nýjum gervigrasvelli á félagssvæði Þórs verður á morgun, fimmtudag, þegar Þórsarar taka á móti Fram í efstu deild karla í knattspyrnu. Á laugardaginn fær Þór/KA FH-inga í heimsókn í fyrstu umferð efstu deildar kvenna en mótanefnd KSÍ hefur veitt undanþágu til að hægt sé að spila þessa tvo leiki á vellinum. Fullnaðarfrágangi við mannvirkið er ekki lokið en vonir standa til að flestir lausu endarnir verði hnýttir innan nokkurra daga.

500 sæta stúka komin upp og timburstúka þar við hliðina. Timburstúkan verður fyrst um sinn fyrir standandi áhorfendur en stefnt er að því að setja 300 sæti í hana þegar líður á sumarið.
„Stutta svarið er já,“ sagði Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs, þegar akureyri.net innti hann eftir því hvort völlurinn væri orðinn klár. „Það er ekki allt tilbúið en samt nóg til að við fáum undanþágu frá mótanefnd KSÍ fyrir þessa tvo leiki,“ bætti hann við. Ýmiss konar frágangi varðandi t.d. girðingar og aðgengismál er ólokið en Reimar sagði að unnið verði að því að klára öll skilyrði sem uppfylla þarf, áður en mannvirkjanefnd KSÍ kemur og framkvæmir lokaúttekt. „Vonandi verður það bara strax í næstu viku,“ segir Reimar.
„Ofboðslegur sprettur síðustu dagana“
Mikið hefur gengið á undanfarið við að koma vellinum og svæðinu í viðunandi horf fyrir fyrstu leikina. „Þetta er búið að vera ofboðslegur sprettur síðustu dagana. Við reyndum að skipta á heimaleik við Fram en það gekk ekki, þannig að þá voru hlaupaskórnir bara reimaðir ennþá fastar og allir lögðust á eitt við að klára þessi mál sem þurftu að vera í lagi,“ segir Reimar og á þar við Þórsara, Akureyrarbæ og KSÍ.

Á syðsta hluta gervigrassins, aftan við keppnisvöllinn er drjúgt æfingasvæði. Glerárskóli næst vellinum, Háskólinn á Akureyri fjær fyrir miðri mynd og bæjarfjallið fallega, Súlur, fjærst í öllu sínu veldi.
Þó að einhverjum frágangi sé enn ólokið skartar völlurinn sjálfur sínu fegursta, upphitaður og flóðlýstur. Og ekki ætti að væsa um áhorfendur. „Ný vallarklukka kom upp í gær og fjölmiðlagámurinn, það er verið að stilla úðunarkerfið núna, 500 sæta stúka komin upp og svo timburstúka þar við hliðina þannig að þetta er allt að smella,“ segir Reimar. Hann segir að fyrst um sinn verði þessi viðbótarstúka fyrir standandi áhorfendur en stefnt sé að því að setja 300 sæti í hana þegar líður á sumarið. „Svo er stefnan að hún víki fyrir annarri stúku og vonandi verður hún 500 manna líka,“ segir Reimar.
Vert er að minnast á að aðkoma áhorfenda að nýja vellinum verður að norðan og austan og bílum skal leggja á stæðinu við Hamar. Síðan er gönguleið þaðan milli Bogans og Hamars að vellinum.

Líf og fjör er lungann úr sólarhringnum á skólalóð Glerárskóla við félagssvæði Þórs, því utan skólatíma eru iðulega margir á sparkvellinum eða í Garðinum hans Gústa, körfuboltavellinum sem gerður var fyrir nokkrum árum í minningu Ágústs H. Guðmundssonar körfuboltaþjálfara.


Grasvöllur Þórs, hlaupabrautin og áhorfendastúkan í fjarska, knattspyrnuhúsið Boginn lengst til hægri og vinstra megin við hann er Hamar, félagsheimili Þórs.


Fannar Daði Malmquist Gíslason leikmaður Þórs á æfingu á nýja gervigrasinu í vikunni.

Meistaraflokkar Þórs og Þórs/KA hafa æft á gervigrasinu undanfarið, og yngri flokkar bæði æft þar og spilað.

Sveinn Elías Jónasson formaður knattspyrnudeildar var í sólskinsskapi á nýja vellinum í vikunni.



Okkar jörð - okkar kraftur
Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð
Einföldum kerfið og lækkum leikskólagjöld
Grípur kerfið barnið?