Fara í efni
Umræðan

Blak: KA einum sigri frá titlinum

KA er nú aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum í blaki karla eftir öruggan sigur á Þrótti í dag. Mynd: Facebook-síða KA.

KA sigraði Reykjavíkur-Þróttara örugglega í þremur hrinum í þriðju viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla í KA-heimilinu í dag. Fyrir leikinn höfðu liðin unnið sinn leikinn hvort og KA getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með því að vinna fjórða leik liðanna í Laugardalshöll á sunnudaginn.

Það voru reyndar Þróttarar sem byrjuðu betur og leiddu lengst af í fyrstu hrinu. KA-menn voru þó sterkari í lokin og unnu hrinuna 25:21. Næsta hrina var hnífjöfn allan tímann og liðin skiptust á um að vera yfir. En eins og í fyrstu hrinunni var það góður endasprettur KA sem gerði gæfumuninn og hrinan endaði 25:22 KA í vil.

Þriðja hrinan var síðan í raun einstefna KA-manna og þeir unnu auðveldan 25:16 sigur og leikinn þar með 3:0. Vinni KA fjórða leik liðanna í Laugardalshöllinni á sunnudaginn verður liðið Íslandsmeistari en vinni Þróttur verður úrslitaviðureignin um titilinn háð í KA-heimilinu næstkomandi miðvikudagskvöld.

Verk að vinna

Elsa María Guðmundsdóttir skrifar
23. apríl 2026 | kl. 06:00

Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Elías Gunnar Þorbjörnsson skrifa
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Okkar jörð - okkar kraftur

Herdís Júlía Júlíusdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 18:00

Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð

Ásthildur Sturludóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:30

Einföldum kerfið og lækkum leikskólagjöld

Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:20

Grípur kerfið barnið?

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
22. apríl 2026 | kl. 11:15