Fara í efni
Umræðan

Ögurstund í blakinu – fótboltinn færður inn

Tvö lið frá KA eru á faraldsfæti í dag. Konurnar í blakinu verða að vinna í Kópavogi í kvöld og karlarnir í fótboltanum hafa verið færðir inn í Akraneshöllina þar sem aðalvöllur Skagamanna er ekki tilbúinn.

Kvennalið KA í blaki er komið í erfiða stöðu eftir ótrúlegan viðsnúning og tap í annarri viðureign liðsins við HK í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í blaki. HK vann fyrstu viðureignina á sínum heimavelli, 3-1, eftir hnífjafnar og spennandi hrinur. Í öðrum leiknum vann KA fyrstu tvær hrinurnar, en HK sneri taflinu við og vann 3-2. KA er þar með lent 0-2 undir í einvíginu og verður því að vinna á miðvikudag til að halda einvíginu gangandi.

  • Íslandsmótið, Unbroken-deild kvenna í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 3
    Digranes í Kópavogi kl. 18
    HK - KA
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

Koma fyrstu stigin í hús innanhúss?

KA er án stiga eftir fyrstu tvær umferðir Bestu deildar karla í knattspyrnu, tvö töp í tveimur heimaleikjum gegn Stjörnunni og Víkingi. Á miðvikudag er komið að fyrsta útileik liðsins, heimsókn á Akranes þar sem KA mætir ÍA. Skagamenn hafa náð sér í eitt stig í fyrstu tveimur leikjunum, gerðu jafntefli við Fram í fyrstu umferðinni, en töpuðu síðan naumlega fyrir Breiðabliki.

Tilkynnt var um það í byrjun vikunnar að grasvöllurinn á Akranesi væri ekki tilbúinn og hefur því verið gripið til þess ráðs að fara með leikinn inn í Akraneshöllilna.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Akraneshöllin kl. 18
    ÍA - KA

ÍA vann heimaleik sinn gegn KA í deildinni í maí í fyrra, 3-0, en KA svaraði með 2-0 sigri á sínum heimavelli í júlí og aftur í neðri hluta deildarinnar í október, 5-1.

Sterkari saman

Sindri S. Kristjánsson skrifar
21. apríl 2026 | kl. 16:00

Eflum og byggjum upp Eyrina

Darri Rafn Hólmarsson skrifar
21. apríl 2026 | kl. 11:30

Komum á frístundastyrk fyrir foreldra í fæðingarorlofi!

Óðinn Svan Óðinsson og Paula del Olmo Gómez skrifa
21. apríl 2026 | kl. 10:00

Hvað á að byggja? Hvar á að byggja?

Unnur Pétursdóttir skrifar
20. apríl 2026 | kl. 18:00

Afreks Akademía Akureyrar

Íunn Eir Gunnarsdóttir skrifar
20. apríl 2026 | kl. 18:00

Hver stendur með kennurum – ef einhver?

Björn Valur Gíslason skrifar
20. apríl 2026 | kl. 12:00