Þarf kosningaskrifstofu til að eiga samtal?
Það fer líklega ekki framhjá mörgum að sveitarstjórnarkosningar eru framundan í maí. Þegar kosningar færast nær tekur umræðan jafnan við sér og andrúmsloftið verður greinilega líflegra. Samtölin verða fleiri, sjónarmiðin skýrari og nær allt virðist opið til umræðu.
Einn af föstum liðum kosningabaráttu stjórnmálaflokka er opnun kosningaskrifstofa. Þó að aðstæður séu mismunandi eftir sveitarfélögum og svæðum, þá er hefðin sú að frambjóðendur komi sér fyrir á ákveðnum stað þar sem gestum og gangandi er boðið upp á kaffisopa, vöfflur og jafnvel smá skemmtidagskrá og það er bara hið besta mál.
Við í Viðreisn á Akureyri höfum hins vegar velt þessu fyrir okkur af alvöru. Við höfum átt ítarleg samtöl um hvort og hvernig kosningaskrifstofa nýtist framboðinu, enda er aðgengi mikilvægur þáttur. Það skiptir máli að vera sýnileg og geta átt samtal við íbúa um þau mál sem brenna á hverjum og einum.
En þurfa þessi samtöl endilega að eiga sér stað á kosningaskrifstofu? Sú spurning bankaði reglulega upp á þegar vikurnar fram að kosningum voru settar saman.

Viðreisn á Akureyri svarar þessari spurningu einfaldlega neitandi og hefur ákveðið að fara aðra leið. Í stefnuskrá okkar leggjum við meðal annars áherslu á að styðja við og efla atvinnulífið. Akureyringar eru lánsamir að búa yfir fjölmörgum góðum samkomustöðum sem eiga skilið stuðning, bæði í orði og verki. Í kosningabaráttu okkar ætlum við því að vera á ferðinni um bæinn, hitta fólk á þeirra eigin forsendum, eiga samtöl við kjósendur og nýta þá þjónustu sem er í boði í bænum. Með því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja við fjölbreytta flóru veitingastaða, kaffihúsa, skemmtistaða og annarra samkomustaða og um leið skapa vettvang fyrir samtöl sem skipta máli. Við verðum með töfluna, glósubókina og virka hlustun að vopni, alla daga fram að kosningum.
Langar þig að hitta okkur? Við munum auglýsa hvar og hvenær við verðum á ferðinni í Dagskrá allra Akureyringa og á Facebook‑síðu okkar, Viðreisn á Akureyri. Við hvetjum þig til að fylgjast vel með.
Við förum ekki hefðbundna leið og höfum enga kosningaskrifstofu. Við teljum það vera þess virði. Þess í stað veljum við að vera á ferðinni um bæinn, í samtali við fólk. Við hlökkum til að hitta þig á næstu vikum.
Það má líka senda okkur tölvupóst á akureyri@vidreisn.is, hringja í Jóhann, kosningastjórann okkar í síma 662-5662 eða Lovísu, oddvitann okkar í síma 868-7417.
Börn eiga rétt á því sem virkar
Verk að vinna
Okkar jörð - okkar kraftur
Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?