Fara í efni
Umræðan

Þórhallur Jónsson fer í sérframboð

Þórhallur Jónsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og mun tefla fram nýjum lista, Akureyrarlistanum, í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Þórhallur hefur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu ár, hefur í tvígang verið formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar og formaður fulltrúaráðs flokksins á Akureyri.

Þórhallur var bæjarfulltrúi frá 2018 til 2022. Hann var í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir kosningarnar 2018 og flokkurinn fékk þrjá menn kjörna en tapaði einum manni í síðustu kosningum og Þórhallur hefur verið varabæjarfulltrúi á kjörtímabilinu sem lýkur í vor.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, verður í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í vor og Heimir Örn Árnason, oddviti flokksins síðustu ár, færist niður í 2. sæti.

Ákveðið var í haust að raðað yrði á listann en ekki viðhaft prófkjör. Bæði Heimir og Berglind höfðu sóst eftir efsta sætinu en ákváðu síðan að lýsa yfir stuðningi hvort við annað. Þórhallur hafði gefið kost á sér í 2.-3. sæti en eftir samkomulag Heimis og Berglindar krafðist hann þess að haldið yrði prófkjör. Ekki var fallist á það, Þórhallur gaf þá kost á sér í 1. sæti en tapaði naumlega fyrir Berglindi á röðunarfundi fulltrúaráðs flokksins; aðeins munaði sex atkvæðum, Berglind fékk 61 atkvæði en Þórhallur 55.

Þórhallur gefur kost á sér í 2.-3. sæti

Þórhallur kærir, krefst prófkjörs og vill 1. sæti

Berglind nýr oddviti Sjálfstæðismanna

Fögnum saman á Akureyrarvöku!

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 17:17

Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst?

Hjörtur Hjartarson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00

Óskhyggjan og veruleikinn

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 18:00

NEI

Jón Hjaltason skrifar
27. ágúst 2026 | kl. 10:30

Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land

Logi Einarsson skrifar
26. ágúst 2026 | kl. 15:30

Gamli sáttmálinn og sá nýi

Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar
26. ágúst 2026 | kl. 15:15