Fara í efni
Umræðan

Samstöðutónleikar á Kristnesi á laugardag

María Pálsdóttir á Hælinu - setri um sögu berklanna sem hún kom á fót á Kristnesi. „Við erum ansi mörg sem erum ósátt við þessa málavöxtu og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sannfæra stjórnvöld um að þarna eigi endurhæfingin heima,“ segir hún. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Tónlistarfólk og baráttuhópur um áframhaldandi endurhæfingarstarfsemi á Kristnesi taka höndum saman í hádeginu laugardaginn 29. ágúst og standa fyrir tónleikum utandyra sunnan við Kristnesspítala, í þeim tilgangi að vekja athygli á málefninu með jákvæðum og skemmtilegum hætti.

Í fréttatilkynningu frá baráttuhópnum segir að endurhæfingarþjónusta Sjúkrahússins á Akureyri hafi um áratugaskeið farið fram á Kristnesspítala og þar hafi meðal annars verið byggð upp sérhæfð endurhæfingarsundlaug. Þá hafi umhverfi spítalans lengi verið talið hafa mikil og jákvæð áhrif fyrir starfsemina og þá sem þar dvelja.

Eins og fram hefur komið í fréttum liggur fyrir að endurhæfingarstarfsemin verður flutt frá Kristnesi til Akureyrar, vegna óviðunandi ástands húsakostsins. Baráttuhópur sem samanstendur m.a. af endurhæfingarlæknum, sjúkraþjálfurum og fleira starfsfólki á Kristnesi, ásamt velunnurum Kristness, hefur mótmælt þeirri þróun og vill að starfsemin verði áfram á staðnum.

„Við erum ansi mörg sem erum ósátt við þessa málavöxtu og viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sannfæra stjórnvöld um að þarna eigi endurhæfingin heima,“ segir María Pálsdóttir, sem kemur fram fyrir hönd hópsins.

Tíu tónlistaratriði koma fram á samstöðutónleikunum.

2.511 undirskriftir safnast

Baráttuhópurinn hefur þegar safnað 2.511 undirskriftum þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja framtíð endurhæfingar á Kristnesi. Ölmu Möller heilbrigðisráðherra var boðið að koma á tónleikana og taka við undirskriftunum en hún kemst ekki og hópurinn hyggst því koma undirskriftunum til ráðherrans síðar.

Kristnesspítali verður 100 ára á næsta ári og óvissa ríkir um framtíð hússins samhliða áformum um að flytja endurhæfingarstarfsemina.

„Okkur langaði líka að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt til að vekja athygli á málstaðnum og datt í hug að henda í tónleika sunnan við spítalabygginguna si svona,“ segir María.

Tíu atriði stíga á svið

Tíu tónlistarmenn og hljómsveitir ætla að koma fram og taka lagið án þess að þiggja greiðslu fyrir og Exton leggur til hljóðkerfi án endurgjalds. Enginn aðgangseyrir verður að tónleikunum en frjáls framlög eru vel þegin svo hægt sé að greiða hljóðmanni.

Markmiðið er þannig að sameina fólk í fallegu umhverfi Kristness, njóta tónlistar og um leið vekja athygli á þeirri baráttu sem nú stendur um framtíð endurhæfingarstarfseminnar á staðnum.

Hvað gerist í síðari hálfleik? 

Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar
19. október 2026 | kl. 16:30

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15