Fara í efni
Umræðan

Snýr heim og tekur við Hríseyjarbúðinni

Gabríel Ingimarsson, nýr rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar.

Gabríel Ingimarsson hefur tekið við stöðu rekstrarstjóra Hríseyjarbúðarinnar og snýr aftur í heimabyggð eftir nokkurra ára fjarveru með viðkomu í Reykjavík, Laugum í Reykjadal og Brussel.

Gabríel er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á fjármál og starfaði síðast sem sérfræðingur í fjármáladeild Össurar í þrjú ár. Sem rekstrarstjóri mun Gabríel leggja áherslu á að bæta rekstrargrundvöll verslunarinnar með auknum viðskiptum við eyjarskeggja og með breiðara vöruúrvali þannig að þar standi Hríseyingum allar helstu nauðsynjar til boða. „Sér hann fram á skemmtileg tækifæri í að að víkka út hlutverk búðarinnar í samfélaginu þannig hún sinni stærra samfélagslegu hlutverki á veturna,“ segir í tilkynningu.

Gabríel segist vera þakklátur fyrir þær móttökur sem hann hefur fengið á þeim stutta tíma síðan hann hóf störf og hlakkar til að vinna með og í þágu íbúa Hríseyjar á komandi tímum.

„Það er gríðarlega verðmætt að fá tækifæri að snúa aftur í Hrísey og taka við rekstri verslunarinnar. Það hefur verið mikill uppgangur í Hrísey og ég er ánægður að geta tekið þátt í og stuðlað að því, í litlu samfélagi munar um allt og ég er spenntur að leggja mitt lóð á vogarskálarnar,“ segir Gabríel nýr rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar.

Vill styrkja verslun í Hrísey

Hríseyjarbúðin var stofnuð árið 2015 af fólki í eyjunni og hugsuð sem samfélagslegt verkefni. Í dag eru hluthafar í búðinni 79 talsins. „Verslunin er opin allt árið og er þar einnig rekin afgreiðsla fyrir Póstinn, mannlegur hraðbanki, afhendingarstöð fyrir Vínbúðina og sjálfsafgreiðsluverslun utan opnunartíma,“ segir í tilkynningunni.

„Það eru mörg spennandi tækifæri í rekstri Hríseyjarbúðarinnar til að bæta þjónustu við íbúa jafnt sem sumarhúsaeigendur og ferðamenn. Rekstri sjálfstæðra verslana á landsbyggðum Íslands fylgja einstakar áskoranir en tækifærin eru alveg jafn einstök og huga þarf sérstaklega að því að auka og tryggja rekstrarstoðir Hríseyjarbúðarinnar til lengri tíma,“ bætir Gabríel við.

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu

Clara Ganslandt skrifar
09. maí 2025 | kl. 16:30

Stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu í Víðilundi

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
08. maí 2025 | kl. 13:45

Líflínan

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:00

Samstaða, kjarkur og þor

Björn Snæbjörnsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 15:00

Um nesti, fótbolta og fótbolta kvenna

Þór Karls skrifar
30. apríl 2025 | kl. 06:00

Afgangur og þrír þræðir jarðtengingar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 16:00