Fara í efni
Umræðan

SBA kaupir Mývatn Tours og eflir reksturinn

Mývatn Tours var stofnað árið 1980 af Jóni Árna Sigfússyni. SBA Norðurleið tekur nú við rekstrinum og mun bjóða upp á ferðir inn á hálendið. Mynd: Mývatn Tours

SBA Norðurleið hefur keypt Mývatn Tours, fyrirtæki sem í meira en 40 ár hefur staðið fyrir ferðum frá Mývatnssveit í Öskju og Herðubreiðarlindir. Kaupin gengu formlega í gegn í síðustu viku.

Mývatn Tours hefur um árabil verið eitt þekktasta fyrirtæki landsins í hálendisferðum á Norðausturlandi og boðið ferðamönnum upp á dagsferðir að Öskju, Víti, Drekagili og Herðubreiðarlindum yfir sumarmánuðina. 

„Við ætlum að reyna að poppa þetta aðeins upp, auka söluna í þessu og gera þetta lífvænlegra,“ segir Gunnar Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SBA, í samtali við akureyri.net. Segir hann að fyrirtækið Mývatn Tours hafi verið til sölu og að SBA hafi séð tækifæri í starfseminni og ætli sér að efla reksturinn.

Ferðum mun ekki fækka

Ferðirnar verða áfram farnar frá Mývatnssveit, líkt og verið hefur. Reksturinn er að mestu bundinn við júlí og ágúst þegar hálendisvegir eru opnir, þó að færð geti verið ótrygg framan af sumri. SBA keypti einnig snjótroðara sem notaður hefur verið þegar ófært er fyrir hefðbundnar bifreiðar inn á svæðið. „Það er stundum ekki orðið opið þarna upp eftir í byrjun júlí. Þá er fólk ferjað á snjótroðaranum,“ segir Gunnar.

Aðspurður segir hann ekki búið að ákveða hvort ferðum verði fjölgað, en þó sé ljóst að þær muni ekki dragast saman. „Þeim fækkar allavega ekki, þeim frekar fjölgar,“ segir hann. SBA hyggst jafnframt halda áfram að nýta nafnið Mývatn Tours. „Við keyptum vörumerkið líka, þannig að við getum auglýst undir báðum nöfnum,“ segir Gunnar. Hann segir að bókanir fyrir sumarið séu þegar mjög góðar og stefnt sé að því að samþætta starfsemina við bókunarkerfi SBA á næstunni.

Aukið frelsi og sanngjarnt verð

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. júní 2026 | kl. 08:00

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00