Fara í efni
Umræðan

Ný vefsíða auðveldar norðurljósaskoðun

Nýja norðurljósaspáin vísar áhugasömum m.a. á bílastæði til að njóta norðurljósa því brögð hafa verið að því að ferðamenn stöðvi bíla sína á þjóðveginum og skapi með því hættu. Mynd: Guidetoiceland.is.

Ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland hefur opnað nýja norðurljósaspá fyrir Ísland sem á að auðvelda ferðamönnum að finna bæði rétta tímann og hentugan stað til að sjá norðurljósin. Spáin er ókeypis, öllum opin og fáanleg á 16 erlendum tungumálum, auk íslensku.

Eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Guide to Iceland byggist spáin meðal annars á Kp-stuðli, mælingum á sólvindi og skýjahulu og nær yfir níu svæði á Íslandi. Hægt er að skoða aðstæður klukkustund fyrir klukkustund næstu 72 klukkustundirnar og einnig lengri horfur allt að þrjár vikum fram í tímann. Þar má jafnframt sjá upplýsingar um sólarupprás, sólsetur og tunglstöðu.

  • Ein helsta nýjungin er að spáin gefur upp besta tímann til að sjá norðurljósin á hverjum stað. Notandinn þarf því ekki sjálfur að túlka mismunandi tölur og upplýsingar til að komast að því hvenær líkurnar eru mestar.
  • Önnur nýjung snýr að öryggi. Spáin getur vísað á útsýnisstaði þar sem hægt er að leggja bílnum, þannig að fólk þurfi síður að stöðva úti í vegkanti þegar norðurljósin birtast.

„Fólk keyrir út úr borginni, sér grænan bjarma og stoppar þar sem það er statt. Það er hættulegt, bæði fyrir ökumanninn og þá sem á eftir koma,“ segir Ingólfur Shahin, forstjóri Guide to Iceland í fréttatilkynningunni. Hann segir tilganginn vera að gera fólki kleift að skipuleggja norðurljósaferðir betur, bæði með tilliti til þess hvenær líkurnar eru bestar og hvert sé öruggt að fara.

Norðurljósaspáin er aðgengileg hérna á vef Guide to Iceland.

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30

Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi

Hlín Bolladóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 09:30

Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum

Oddný Jónsdóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 06:00

Námaskarð, öryggismál

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
11. september 2026 | kl. 16:00