Fara í efni
Umræðan

SA Víkingar með sigur í framlengdum leik

Jóhann Már Leifsson opnaði markareikninginn og lokaði honum í 5-4 útisigri SA á Fjölni í framlengdum leik. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar höfðu nauman sigur gegn Fjölni í leik liðanna á skautasvelli Egilshallarinnar í gærkvöld, 5-4, eftir framlengingu. SA komst í 4-1, en heimamenn röðuðu inn mörkum á 84 sekúndna kafla í þriðja leikhlutanum og jöfnuðu leikinn. Það var síðan Jóhann Már Leifsson sem tryggði SA sigurinn með marki í framlengingu.

Jóhann Már náði forystunni fyrir SA undir miðjan fyrsta leikhluta með hnitmiðuðu skoti fyrir utan. Falur Guðnason jafnaði fyrir heimamenn í öðrum leikhluta, en Hafþór Andri Sigrúnarson svaraði með marki fjórum mínútum síðar. SA með 2-1 forystu fyrir þriðja leikhlutann.

Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði tvö mörk fyrir SA í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

En fjörið var rétt að byrja. Þegar upp var staðið voru mörkin í þriðja leikhlutanum orðin fimm. Um tíma leit út fyrir að SA væri að sigla öruggum sigri heim. Hafþór Andri skoraði sitt annað mark eftir 24 sekúndna leik og Mikael Eiríksson kom Akureyringum í 4-1 undir miðjan þriðja leikhlutann, með sínu fyrsta marki í meistaraflokki.

Heimamenn í Fjölni voru ekki á því að hleypa Akureyringum of auðveldlega með öll stigin norður. Á 84 sekúndna leikkafla komu þrjú mörk í andlitið á SA Víkingum og leikurinn skyndilega orðinn jafn. Lokamínúturnar urðu æsilegar, bæði lið með fín tækifæri til að klára leikinn, en vantaði bara að koma pökknum í markið. SA fékk gullið tækifæri upp í hendurnar þegar Fjölnismenn fengu refsingu og spiluðu einum færri, en það nýttist þó ekki. Niðurstaðan 4-4 að loknum 60 mínútum og því framlengt til að skera úr um sigur og aukastigið.

Jóhann Már Leifsson opnaði markareikninginn í upphafi leiks og hann sá einnig um að loka honum, skoraði gullmarkið þegar innan við mínúta var eftir af framlengingunni. Akureyringar voru þá einum fleiri eftir að Fjölnismaður fékk refsingu fyrir brot á Unnari Hafberg Rúnarssyni. Unnar fór meiddur af svellinu, en félagar hans nýttu sér yfirtöluna og kláruðu leikinn.

Þegar upp var staðið höfðu bæði lið átt jafn mörg skot að marki, 35 hvort lið.

Fjölnir - SA 4-5 (0-1, 1-1, 3-2, 0-1)

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Krisjanis Abolins-Abols 1/1, Falur Guðnason 1/0, Hilmar Sverrisson 1/0, Viggó Hlynsson 1/0, Andri Helgason 0/1, Kristján Jóhannesson 0/2.
Varin skot: Þórir Aspar 30 af 35 (85,71%).
Refsingar: 12 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson 2/2, Hafþór Andri Sigrúnarson 2/0, Mikael Eiríksson 1/0, Gunnar Arason 0/2, Alex Ingason 0/1, Arnar Kristjánsson 0/1, Aron Gautason 0/1, Bjarki Jóhannesson 0/1, Ormur Jónsson 0/1.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 31 af 35 (88,57%).
Refsingar: 10 mínútur.

SA er í 2. sæti Toppdeildar karla með átta stig úr fyrstu fimm leikjunum. SR er á toppnum með 11 stig úr fjórum leikjum, en Fjölnir í 3. sætinu með fjögur stig úr þremur leikjum.

Leikskýrslan (atvikalýsing)
Staðan í Toppdeild karla

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15