Fara í efni
Umræðan

Fjöldi hörkuleikja á íþróttadagskránni

Vikan fram undan býður upp á fjölbreytta skemmtun, örlagaríka leiki, átök erkifjenda, viðureignir deildarmeistara og Íslandsmeistara í blaki og íshokkí og tvíhöfða í körfubolta, sem kemur reyndar í beinu framhaldi af stærsta Pollamóti Þórs í körfubolta hingað til.

  • Akureyrarliðin þrjú í Olísdeildum karla og kvenna í handbolta spila í vikunni. Þar eru heimaleikir á dagskrá hjá KA og KA/Þór á fimmtudag og föstudag, en Þór á útileik á föstudag. KA kom sér upp í 2. sætið með sex stig í Olísdeild karla með sigri á Íslandsmeisturum Vals í 4. umferðinni, en Þór er í 7. sæti með fjögur stig. KA/Þór hefur hins vegar átt erfitt uppdráttar og hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni.
  • Á föstudag ráðast örlög þriggja liða í neðstu sætum Bestu deildar kvenna í knattspyrnu, en þá fer fram lokaumferðin, eða þriðja umferð í neðri hlutanum. Tvö lið munu falla úr deildinni og fyrir lokaumferðina eru þrjú lið í hættu. Þór/KA og Víkingur eru með 22 stig, en Valur með 21 stig. Þór/KA sækir Víking heim á sama tíma og Fram tekur á móti Val. Fram hefur nú þegar tryggt áframhaldandi veru sína í deildinni. Segja má að leikur Þórs/KA og Víkings sé úrslitaleikur því það lið sem vinnur bjargar sér frá falli. Jafntefli gæti nægt Þór/KA ef Valur vinnur ekki Fram, þar sem markatala Þórs/KA er betri en hinna liðanna. En geri Þór/KA og Víkingur jafntefli myndu þau bæði falla ef Valur vinnur Fram.
  • Það verður væntanlega tveir hörkuleikir í boði fyrir blakaðdáendur í KA-heimilinu á laguardag og sunnudag þegar KA og Hamar mætast í Unbroken-deild karla. Þar mætast Íslandsmeistarar og deildarmeistarar síðasta tímabils.
  • Seinna sama kvöld verður annar hörkuleikur í boði á Akureyri, þegar SA og SR mætast í Toppdeild karla í íshokkí. 
  • Körfuboltinn fer svo af stað með hvelli. Fyrst verður helgin undirlögð af Pollamóti Þórs í körfubolta á föstudag og laugardag, en síðan verður svokallaður tvíhöfði á sunnudag þegar kvenna- og karlalið Þórs taka á móti nöfnum sínum í Þór frá Þorlákshöfn.

FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER - handbolti

Heldur KA áfram á sigurbraut þegar Eyjamenn, með nýjan aðalþjálfara, koma norður? KA er í 2. sæti deildarinnar og hefur meðal annarra unnið Íslandsmeistarana á útivelli og aðeins tapað einum leik, gegn Þór.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 5. umferð
    KA-heimilið kl. 18
    KA - ÍBV

FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER - fótbolti, handbolti

Örlög liðanna í þremur neðstu sætum Bestu deildar kvenna munu ráðast á föstudag. Þór/KA, Víkingur og Valur berjast um eitt sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili, en tvö þeirra munu falla og leika í Lengjudeildinni.

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, neðri hluti
    Víkingsvöllur kl. 18
    Víkingur - Þór/KA

    Enn er beðið eftir fyrsta sigri KA/Þórs í Olísdeild kvenna. Tekst þeim að vinna Íslandsmeistarana á heimavelli?
  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 4. umferð
    KA-heimilið kl. 18
    KA/Þór - Valur

    Tekst Þórsurum að snúa við taflinu eftir tap í síðustu umferð, feta í fótspor grannanna og vinna Íslandsmeistarana á útivelli?
  • Handbolti
    Olísdeild karla, 5. umferð
    Valsheimilið (N1 höllin að Hlíðarenda) kl. 18:30
    Valur - Þór

 

LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER - blak, íshokkí

Hörkuslagur í boði í KA-heimilinu á laugardag þegar Íslandsmeistarar KA taka á móti deildarmeisturum Hamars í fyrri viðureign þessara liða um helgina.

    • Blak
      Unbroken-deild karla
      KA-heimilið kl. 18
      KA - Hamar

Slagur Íslandsmeistara og deildarmeistara í íshokkí í boði syðra á laugardag. SA Víkingar sækja SR-inga heim.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA

SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER - blak, körfubolti

Seinni viðureign KA og Hamars á dagskrá í dag. Búast má vð hörkuleik.

  • Blak
    Unbroken-deild karla
    KA-heimilið kl. 15
    KA - Hamar

Körfuboltalið Þórs hafa verið að undirbúa sig undanfarnar vikur, nýir leikmenn komið í stað annarra sem hafa farið. Formlega hefst keppnistímabilið sunnudaginn 4. október hjá Þórsliðunum og þá með hvelli því það er boðið upp á tvíhöfða, svokallaðan, þegar nafnarnir frá Akureyri og úr Þorlákshöfn mætast, bæði í karla og kvennaflokki. Dagana tvo á undan verður körfuboltasamfélagið á Akureyri reyndar undirlagt af Pollamóti Þórs í körfubolta, því stærsta sem deildin hefur haldið hingað til.

  • Körfubolti
    1. deild kvenna
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15:30
    Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn

  • Körfubolti
    1. deild karla
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
    Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30