Fara í efni
Umræðan

Meistaraslagir í blaki og íshokkí á dagskránni

Fyrsti heimaleikur karlaliðs KA í blaki er á dagskrá í dag og hann ekki af verri gerðinni. Þar mætast Íslands- og deildarmeistarar síðasta tímabils þegar KA tekur á móti liði Hamars úr Hveragerði. Leik dagsins í íshokkí mætti einnig kalla meistaraslag því SA Víkingar sækja Íslandsmeistara SR heim í fjórða leik sínum í Toppdeildinni. 

  • Blaklið KA í Unbroken-deild karla í blaki tapaði fyrir Þrótti í Reykjavík í fyrstu umferðinni, en nú er komið að heimaleik gegn deildarmeisturum síðasta árs. Þegar upp var staðið í vor voru það hins vegar KA-menn sem unnu Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa lent í 2. sæti í deildinni. Nánar er fjallað um blaklið KA í sér upphitunarpistli síðar í dag.
  • Erkifjendur takast á í Skautahöllinni í Laugardal í kvöl þegar SA Víkingar sækja Íslands- og deildarmeistara Skautafélags Reykjavíkur heim. SA Víkingar hafa unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum, töpuðu fyrir Fjölni í fyrsta leik, en unnu síðan tvo örugga sigra gegn U20 liðinu. SR hefur unnið báða leiki sína til þessa, fyrst gegn U20 liðinu og síðan Fjölni núna fyrr í vikunni. 

Hörkuslagur í boði í KA-heimilinu á laugardag þegar Íslandsmeistarar KA taka á móti deildarmeisturum Hamars í fyrri viðureign þessara liða um helgina.

    • Blak
      Unbroken-deild karla
      KA-heimilið kl. 18
      KA - Hamar

Slagur Íslandsmeistara og deildarmeistara í íshokkí í boði syðra á laugardag. SA Víkingar sækja SR-inga heim.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
    SR - SA

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00