Fara í efni
Umræðan

SA vann Atlantic Cup – Silvía Rán stigahæst

Silvía Rán Björgvinsdóttir leiddi lið SA til sigurs á Atlantic Cup, var stigahæst leikmanna mótsins með samtals átta mörk og tvær stoðsendingar. Hér er Silvía Rán ásamt Hilmu Bóel Bergsdóttur í baráttu við Gunnborgu Petru Jóhannsdóttur í leik gegn SR á Akureyri fyrr í mánuðinum. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí vann Atlantic Cup íshokkímótið sem fram fór í Reykjvík um helgina með þátttöku íslensku félagsliðanna þriggja og írska landsliðsins. SA vann alla leiki sína á mótinu, einn eftir framlengingu. Silvía Rán Björgvinsdóttir skoraði átta af 20 mörkum SA í mótinu og átti að auki fjórar stoðsendingar.

Lið SA endaði með átta stig á toppnum, SR kom næst með sjö stig, þá Fjölnir með þrjú, en írska landsliðið endaði án stiga.

Lið SA ásamt þjálfara og liðsstjórum með bikarinn að loknum sigri í Atlantic Cup. Myndin er fengin af vefnum ishokki.is.

SA vann SR í fyrsta leik sínum í mótinu á föstudagskvöld. Silvía Rán Björgvinsdóttir og Guðrún Ásta Valentine komu SA í 2-0 með mörkum í fyrsta og öðrum leikhluta, en Heiður Atladóttir og Teresa Snorradóttir svöruðu með tveimur mörkum í þeim þriðja. Jafnt að loknum 60 mínútum og því gripið til framlengingar. Á lokasekúndu hennar tryggði Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir SA sigurinn. 

SA - SR 3-2 (1-0, 1-0, 0-2, 1-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 1/0, Guðrún Ásta Valentine 1/0, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 1/0, Sólrún Assa Arnardóttir 0/2
Magdalena Sulova 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 23 af 25 (92%)
Refsingar: 6 mínútur

SR
Mörk/stoðsendingar: Heiður Atladóttir 1/0, Teresa Snorradóttir 1/0, Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 0/1, Inga Rakel Aradóttir 0/1.
Varin skot: Julianna Thomson 27 af 30 (90%).
Refsingar: 2 mínútur

Leikskýrslan


Fimm marka sigur á Fjölni varð niðurstaðan í öðrum leik SA í mótinu sem fram fór á laugardag. Silvía Rán Björgvinsdóttir var áberandi í tölfræðinni, skoraði tvö mörk og átti þrjár stoðsendingar. SA náði þriggja marka forystu í fyrsta leikhluta og bætti við tveimur mörkum í öðrum leikhluta áður en Fjölnir skoraði sín tvö mörk. SA bætti svo við tveimur mörkum í þriðja leikhlutanum.

Fjölnir - SA 2-7 (0-3, 2-2, 0-2)

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Elísa Dís Sigfinnsdóttir 1/0, Sigrún Árnadóttir 1/0, Laura-Ann Murphy 0/1, Flosrún Vaka Jóhannesdóttir 0/1, Andrea Kristjánsdóttir 0/1.
Varin skot: Karítas Halldórsdóttir 15 af 22 (68,2%).
Refsingar: 2 mínútur.

SA
Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 3/2, Guðrún Ásta Valentine 2/1, Eyrún Garðarsdóttir 2/0, Sólrún Assa Arnardóttir 0/2, Magdalena Sulova 0/1, Sveindís Marý Sveinsdóttir 0/1, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 0/1, Freyja Rán Sigurjónsdóttir 0/1, Jónína Margrét Guðbjartsdóttir 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 16 af 18 (88,9%).
Refsingar: 8 mínútur.

Leikskýrslan


Þriðji og síðasti leikur SA í mótinu fór fram síðdegis í gær og varð SA-konum ekki skotaskuld úr því að sigra þær írsku. Lokatölur urðu 10-1. SA skoraði þrjú mörk í fyrsta leikhluta, en eina mark Írlands kom snemma í öðrum leikhluta þegar SA konur voru tveimur færri á ís. SA svaraði með tveimur mörkum í öðrum leikhluta og svo fimm í þeim síðasta. Enn var Silvía Rán í fararbroddi, skoraði fjögur mörk og átti tvær stoðsendingar. 

Marey Viðja Sigurðardóttir, sem er rétt tæplega 16 ára, varði mark SA í leiknum í stað Shawlee Gaudreault og gerði það af stakri prýði. Eina markið sem hún fékk á sig var þegar andstæðingarnir voru tveimur fleiri.

SA - Írland 10-1 (3-0, 2-1, 5-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Silvía Rán Björgvinsdóttir 4/2, Magdalena Sulova 2/0, Guðrún Ásta Valentine 1/1, Eyrún Garðarsdóttir 1/1, Heiðrún Helga Rúnarsdóttir 1/0, Aníta Júlíana Benjamínsdóttir 1/0, Berglind Huld Ríkarðsdóttir 0/2, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir 0/1, Silvía Mörk Kristinsdóttir 0/1.
Varin skot: Marey Viðja Sigurðardóttir 16 af 17 (94,1%).
Refsingar: 18 mínútur.

Írland

Mörk/stoðsendingar: Andrea Hubble 1/0, Hallie Cummins 0/1.
Varin skot: Saoirse Lawlor 21 af 27 (77,8%), Aoife McGee 13 af 17 (76,5%).
Refsingar: 16 mínútur.

Leikskýrslan

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30