Fara í efni
Umræðan

Risahelgi í körfunni – Pollamót og tvíhöfði

Nýir þjálfarar hafa tekið við stjórninni hjá báðum Þórsliðunum, Rúnar Ólason þjálfar karlaliðið og Jón Ingi Baldvinsson kvennaliðið. Þegar tilkynnt var um ráðningu þeirra endurnýjuðu Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Karen Lind Helgadóttir samninga við félagið. Karen Lind er jafnframt aðstoðarþjálfari Jóns Inga. Mynd: Þór körfubolti.

Upphaf körfuboltavertíðarinnar hjá Þórsliðunum verður með dálítið óvenjulegum hætti. Árlegt Pollamót Þórs í körfubolta hefur fest sig í sessi og er á dagskránni í dag og á morgun. Strax á sunnudag, í framhaldi af mótinu, eiga svo bæði meistaraflokksliðin heimaleik og má segja að þá verði Þór í fjórða veldi á dagskrá, Akureyri gegn Þorlákshöfn, fyrst í kvennaflokki kl. 15.30 og svo karlaliðin kl. 18.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á körfuboltaliðum Þórs, bæði í leikmannahópunum og í þjálfarateymum þar sem nýir þjálfarar eru komnir til starfa. Rúnar Ólason hefur tekið við stjórn karlaliðsins og Jón Ingi Baldvinsson stýrir kvennaliðinu. Akureyri.net fer yfir leikmannamálin hjá liðunum og fær sýn þjálfaranna á veturinn. En fyrst að Pollamótinu.

Stærsta Pollamótið í körfubolta til þessa

Pollamót Þórs í körfubolta verður fjölmennara í ár en nokkru sinni fyrr, tíu fleiri lið en í fyrra, sem var metár. Það verður því mikið um að vera í Íþróttahöllinni og svo í Sjallanum að móti loknu. 

Ekki verður minnst á Pollamót Þórs og Skógarbaðanna án þess að geta krúttlegrar auglýsingaherferðar þeirra sem standa að mótinu. Sævar Ingi Rúnarsson er þar í aðalhlutverki og greinilegt að undirbúningur hófst snemma því sumar klippurnar sýna hann á hinu Pollamótinu, í fótboltanum í byrjun júlí.

 

Ungt lið með samheldni og baráttu að vopni

Undanfarin ár hefur kvennalið Þórs verið á mörkunum að hafa nógu fjölmennan hóp til að halda úti góðum æfingum og samkeppnishæfu liði og því illa mátt við meiðslum leikmanna. Hópurinn er ekki fjölmennur, níu leikmenn kynntir á leikmannakynningu og raunar ein úr þeim hópi, Hanna Jónasdóttir, sem er of ung til að mega spila í meistaraflokki en mun væntanlega æfa af krafti með liðinu. Í stað fjögurra erlendra leikmanna sem liðið hafði í sínum röðum í fyrra eru nú tvær körfuboltakonur mættar norður, önnur bandarísk og hin frá Svartfjallalandi. 

Jón Ingi Baldvinsson, nýr þjálfari Þórs, er flestum hnútum kunnugur í körfuboltanum hjá Þór enda hefur hann bæði komið að þjálfun, stjórnarstörfum og öðrum störfum sem sjálfboðaliði. Hann var inntur eftir því hvaða vonir og væntingar hann hefur fyrir komandi tímabil. 

Emma Karólína Snæbjarnardóttir, leikmaður ársins í 1. deild kvenna í fyrra, er hér í baráttu við leikmenn Selfoss. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

María Sól Helgadóttir er ein af þeim ungu körfuboltakonum sem hefur komið upp úr yngri flokkum Þórs. Hún hefur reyndar einnig spilað fótbolta og kom við sögu í 14 leikjum með meistaraflokki Dalvíkur/Reynis í 2. deildinni í sumar. Mynd: Helgi Heiðar Jóhannesson.

Leikmenn Þórs:

  • Bríet María Ásgeirsdóttir, bakvörður
  • Emma Karólína Snæbjarnardóttir, bakvörður
  • Hanna Jónasdóttir, bakvörður
  • Karen Lind Helgadóttir, bakvörður
  • Kristný Bragadóttir, bakvörður
  • María Sól Helgadóttir, bakvörður
  • Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl, bakvörðrur
  • Sigurlaug Eva Jónasdóttir, bakvörður
  • Nile Miller, framherji
  • Ksenija Kuzmanovic, framherji

Komnar

  • Bríet María Ásgeirsdóttir, bakvörður
  • Hanna Jónasdóttir, bakvörður
  • Kristný Bragadóttir, bakvörður
  • Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl, bakvörðrur
  • Nile Miller, framherji
  • Ksenija Kuzmanovic, framherji

Farnar

  • Emilie Ravn
  • Yvett Adriaans
  • Hjörtfríður Óðinsdóttir
  • Iho Lopez
  • Kristín María Snorradóttir
  • Hrefna Ottósdóttir
  • Chloe Wilson

Kröftugir í sókn, ágengir í vörn

Karlaliðið er heldur fjölmennara en kvennaliðið, 17 leikmenn kynntir á leikmannakynningu félagsins á dögunum. Þar hafa einnig orðið miklar breytingar og alls 11 leikmenn sem komu við sögu í fyrra sem ekki eru í hópnum núna, en átta komnir inn í staðinn. Nokkrir þeirra eru ungir og efnilegir leikmenn sem koma upp úr yngri flokkum félagsins, en einnig koma inn tveir nýir erlendir leikmenn í stað þeirra sem spiluðu í fyrra. Þá má nefna að Baldur Örn Jóhannesson mætir aftur til leiks.

Ungir og efnilegir leikmenn koma upp úr yngri flokkum Þórs og verða hluti af meistaraflokkshóps félagsins í vetur. Hér undirrita þrír þeirra samninga við félagið. Frá vinstri. Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, Tryggvi Már Elínarson, Ármann Tumi Bjarkason og Bergvin Ingi Magnússon.

Rúnar Ólason var ráðinn til starfa sem þjálfari karlaliðs Þórs í sumar. Hann er nokkuð bjartsýnn á gengi liðsins þegar hann er spurður út í vonir og væntingar fyrir veturinn. 

„Við ætlum að vera samkeppnishæfir í hverjum leik og bæta okkur stöðugt yfir veturinn og stefnum á að vera í baráttuinni þegar líður á veturinn. Við erum með ungan og kraftmikinn hóp og leikmenn sem vilja bæta sig og sanna. Við komum til með að nýta breiddina og spila öflugan liðsbolta. Ég vil spila hraðan og óeigingjarnan körfubolta þar sem leikmenn lesa leikinn og taka réttar ákvarðanir. Varnarlega verðum við agressífir og leggjum okkur alla fram í hvern einasta leik,“ segir Rúnar um liðið sem hann hefur í höndunum.

Á leikmannakynningu fyrir stuttu kom fram í máli Rúnars að hann teldi raunhæft að berjast um sæti 2-5, sem eru þau sæti sem gefa heimaleikjarétt í fyrstu umferð umspilsins um sæti í Bónusdeildinni.

Leikmenn Þórs í 1. deild karla

  • Arngrímur Friðrik Alfreðsson, bakvörður
  • Axel Arnarsson, bakvörður
  • Ármann Tumi Bjarkason, bakvörður
  • Dagur Vilhelm Ragnarsson, bakvörður
  • Bergvin Ingi Magnússon, bakvörður
  • Hjálmar Helgi Jakobsson, bakvörður
  • Hlynur Ingi Finnsson, bakvörður
  • Justin Andrew, bakvörður
  • Pétur Nikulás Cariglia, bakvörður
  • Smári Jónsson, bakvörður
  • Andri Már Jóhannesson, framherji/miðherji
  • Baldur Örn Jóhannesson, framherji/miðherji
  • Daníel Davíðsson, framherji/miðherji
  • Helgi Hjörleifsson, framherji
  • Jalen Green, vængur/framherji
  • Páll Nóel Hjálmarsson, framherji
  • Tryggvi Már Elínarson, framherji

Komnir

  • Ármann Tumi Bjarkason, bakvörður
  • Bergvin Ingi Magnússon, bakvörður
  • Hjálmar Helgi Jakobsson, bakvörður
  • Hlynur Ingi Finnsson, bakvörður
  • Justin Andrew, bakvörður
  • Baldur Örn Jóhannesson, framherji/miðherji
  • Daníel Davíðsson, framherji/miðherji
  • Jalen Green, vængur/framherji

Farnir

  • Christian Caldwell
  • Eiríkur Frímann Jónsson
  • Orri Páll Pálsson
  • Aron Geir Jónsson
  • Jökull Ólafsson
  • Pétur Áki Stefánsson
  • Finnbogi Páll Benónýsson
  • Francisco Del Aquilla
  • Hákon Hilmir Arnarsson
  • Týr Óskar Pratiksson
  • Ísak Otri Finnsson

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15

Beinum kastljósinu að atvinnulífinu

Karl Eskil Pálsson skrifar
29. september 2026 | kl. 20:15

Bókasöfnin okkar

Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
28. september 2026 | kl. 06:00

Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein

Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar
27. september 2026 | kl. 06:00

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00