Aron Einar hættir með landsliðinu í haust
Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, tilkynnti í dag að leikir Íslands í Þjóðadeildinni þetta haustið verði hans síðustu með landsliðinu. Hann er 37 ára, fæddur 22. apríl 1989.
Aron á 110 leiki að baki með A-landsliðinu en annar Akureyringur, Birkir Bjarnason, tók á sínum tíma þátt í 113 leikjum. Komi Aron við sögu í fjórum af leikjunum sex slær hann því met Birkis.
Aron tilkynnti ákvörðun sína með færslu á Instagram:
Ég átti mér draum … sem ég fékk að lifa
Fyrsti leikurinn minn í treyjunni bláu, fyrsta markið mitt, fyrsti leikurinn með fyrirliðabandið, fyrsta stórmótið sem ég fékk að upplifa ... alla þessa upplifun og allar þessar minningar sem ég á eftir að rifja upp og njóta alla mína ævi og segja börnunum og barnabörnunum frá um ókomna tíð.
Ég hef gefið líf mitt og sál fyrir landið mitt í 18 ár og landið hefur gefið mér orku til baka, nú er kominn tími til að skilja við. Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu. Við ætlum að leggja alla okkar orku í þessa leiki og við ætlum að vinna. Fyrir Ísland.
Þetta eru leikir Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar í haust:
- 26. september: Ísland - Eistland
- 29. september: Lúxemborg - Ísland
- 3. október: Ísland - Búlgaría
- 6. október: Eistland - Ísland
- 13. nóvember: Búlgaría - Ísland
- 16. nóvember: Ísland - Lúxemborg
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi
Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum
Námaskarð, öryggismál