Fara í efni
Umræðan

Þór/KA enn í fallhættu eftir tap gegn Fram

Margrét Árnadóttir skoraði mark Þórs/KA úr vítaspyrnu. Hún renndi knettinum í vinstra hornið eftir að markvörður Fram var lagður af stað í hina áttina. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Þór/KA tapaði 2:1 gegn Fram á heimavelli sínum í annarri umferð úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Tapið þýðir að liðið er enn í mikilli fallhættu fyrir síðustu umferðina. Fyrir leikinn var vitað að sigur gæti mögulega tryggt viðkomandi liði áframhaldandi veru í efstu deildinni og þrátt fyrir að vera lengst af betra liðið í leiknum gekk Þór/KA illa að skapa sér markfæri og þurfti að bíta í það súra epli að tapa. 

Fyrir síðustu umferðina af þremur er staðan í neðri hlutanum þannig að Fram hefur 26 stig, og hefur tryggt sæti sitt í deildinni, Þór/KA er með 22 stig, Víkingur er líka með 22 stig og Valur hefur 21 stig.

Í lokaumferðinni sækir Þór/KA Víking heim og Fram og Valur etja kappi. Ef Þór/KA vinnur Víking er liðið öruggt með að halda sæti sínu í efstu deild. Jafntefli gæti líka dugað, að því tilskildu að Valur vinni ekki Fram, því markatala Þórs/KA er mun betri en hinna liðanna. Tapi Þór/KA gegn Víkingi er liðið fallið úr deildinni, óháð úrslitunum úr leik Fram og Vals. Þessir síðustu leikir fara fram föstudagskvöldið 2. október.

Framarar nýttu færin

Framarar skoruðu mörkin sín tvö snemma í leiknum, eiginlega úr einu færunum sem liðið fékk. Á 11. mínútu sendi Brookelynn Paige Entz boltann fyrir mark Þórs/KA og umkringd þremur varnarmönnum fékk Sara Svanhildur Jóhannsdóttir boltann eiginlega í sig og hann lak rólega að markinu og inn fyrir línuna. Afskaplega klaufalegt mark og óneitanlega nokkur heppnisstimpill yfir afgreiðslunni.

Sex mínútum síðar fengu Framarar aukaspyrnu úti hægra megin og eftir klafs í teignum hrekkur boltinn upp í loft og Isabelle Gilmore skallar hann aftur fyrir sig inn á markteig þar sem Emma Kate Young stakk sér innfyrir og afgreiddi boltann í netið.

Emma Kate Young potar hér knettinum framhjá Alessöndru Augur í marki Þórs/KA. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Þór/KA minnkaði muninn á 36. mínútu þegar vítaspyrna var dæmd á Ashley Brown Orkus fyrir að fella Lauren Adrienne Lapomard. Hulda Ósk Jónsdóttir sendi boltann inn fyrir vörnina og Ashley missti af boltanum og felldi Lauren. Margrét Árnadóttir skoraði af miklu öryggi úr vítinu og minnkaði muninn í 2:1.

Bitlaus sóknarleikur í seinni hálfleik

Þór/KA réði síðan ferðinni mestan hluta síðari hálfleiks og jók pressuna á Framliðið smám saman. Framarar vörðust hins vegar vel og Þór/KA gekk engan veginn að skapa sér einhver færi. Þrátt fyrir örfá hálffæri var því miður frekar lítið að gerast á síðasta vallarþriðjungi og til marks um það var það Arna Sif Ásgrímsdóttir sem var aðgangshörðust við mark Fram í blálokin þegar hún var komin fram og átti meðal annars skalla rétt framhjá.

Svekkjandi tap – en reyndar hefði jafntefli ekki breytt því að liðið þarf sigur í síðasta leiknum til að gulltryggja sæti sitt í deildinni.

Þór/KA: Alessandra Dorothy Augur – María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Angela Mary Helgadóttir (Erin Flurey 51.) – Hulda Ósk Jónsdóttir (Halla Bríet Kristjánsdóttir 69.), Elizabeth Moore, Karen María Sigurgeirsdóttir (Amalía Árnadóttir 88.), Hildur Anna Birgisdóttir, Lauren Adrienne Lapomarda – Margrét Árnadóttir.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar

Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. september 2026 | kl. 20:00

Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?

Eyrún Gígja Káradóttir skrifar
22. september 2026 | kl. 19:00

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30

Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi

Hlín Bolladóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 09:30

Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum

Oddný Jónsdóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 06:00