Dregið í bikarkeppnum í handbolta og körfu
Dregið hefur verið um leiki í bikarkeppnunum í handbolta og körfubolta. Handboltalið Akureyrar fá útileiki, en körfuboltalið karla heimaleik. Konurnar í körfunni sitja hjá í fyrstu umferð.
Í handboltanum er keppt undir merkjum Powerade-bikarsins. Akureyrarliðin öll fá útileik í 32 liða úrslitunum, Þórsarar fara til Eyja þar sem þeir mæta b-liði heimamanna, en KA menn mæta Víkingi. Leikdagar 16 liða úrslita karla eru 8. og 9. október. KA/Þór fær útileik gegn Fjölni, leikdagar kvennaliðanna eru 18. og 19. nóvember.
- 9. október: Víkingur - KA
- 8. eða 9. október: ÍBV-B - Þór
Leikir 16 liða úrslitanna:
- HK – Afturelding
- ÍBV B – Þór
- FH – Fram
- Hvíti Riddarinn – Grótta
- Selfoss – Valur
- Víkingur – KA
- Haukar – Stjarnan
- ÍR – ÍBV
- 18. eða 19. nóvember: Fjölnir - KA/Þór
- Stjarnan – ÍBV
- Afturelding – ÍR
- Fjölnir – KA/Þór
- Víkingur – Selfoss
- FH – HK
- Grótta – Fram
- 18. eða 19. október: Þór - Sindri
Leikir 32 liða úrslitanna:
- Þór – Sindri
- ÍA – Álftanes
- Skallagrímur – KR
- Haukar – Tindastóll
- Þór Þ. – Valur
- Aþena/Leiknir – Vestri
- Breiðablik – Grindavík
- Víðir – Njarðvík
- Laugdælir/Uppsveitir – KV
- Selfoss – Stjarnan
- KR b – ÍR
- Afturelding – Hamar
- Fjölnir – Höttur
Snæfell, Keflavík og Ármann sitja hjá og eru komin í 16 liða úrslit VÍS bikarkeppninnar.
Aðeins einn leikur er í 32 liða úrslitum, eða fyrstu umferð, VÍS-bikarkeppni kvenna, þar sem 17 lið eru skráð til leiks. Þar mætast Keflavík-B og Fjölnir, en lið Þórs fer beint í 16 liða úrslit. Liðin sem fara beint í 16 liða úrslit: Aþena, Ármann, Breiðablik, Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór A. og Þór Þ.
Hvað ef það væri samfélagsgarður við Mýrarveg?
Ónýtt drasl-fólkið
Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls
Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi