Fara í efni
Umræðan

Orka til Akureyrar

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða á dögunum að auglýsa aðalskipulag vegna nýrrar Blöndulínu 3 sem Landsnet hyggst reisa og reka á 220 kV spennu. Eftir margra ára togstreitu við Landsnet náðist viðunandi samkomulag um útfærslu á línunni sem tryggir að hún verði lögð í jörð næst þéttbýlinu á Akureyri eins fljótt og tæknilegar forsendur leyfa. Línan mun tryggja flutning á raforku frá Blönduvirkjun til Eyjafjarðarsvæðisins. Úr hinni áttinni færir Hólasandslína 3 okkur raforku frá hinu öfluga Þeistareykjasvæði í Þingeyjarsýslum, en sú lína var tekin í notkun árið 2022.

Þessi bætta tenging Akureyrar við raforkukerfi landsins færir okkur margvísleg tækifæri. Skýrasta dæmið er líklega kröftug uppbygging á gagnaveri AT North við Hlíðarfjallsveg. Fyrsti áfangi gagnaversins var tekinn í notkun fyrir tæplega þremur árum í júní 2023. Síðan hefur fyrirtækið þrívegis óskað eftir stækkun á lóð og hefur Akureyrarbær tekið jákvætt í það í öll skiptin. Nú þegar hefur það sýnt sig að mörg bein og óbein störf skapast, ekki aðeins við uppbygginguna, heldur einnig við reksturinn. Þetta eru margvísleg og vel launuð störf sérfræðinga, iðnaðarmanna, stjórnenda ofl. og góð viðbót við okkar samfélag. Þá er tryggt í samningum að Akureyrarbær hefur möguleika á að nýta afgangsvarma frá gagnaverinu, annað hvort til beinnar atvinnusköpunar svo sem ylræktar, eða sem viðbót við orkuöflun hitaveitu Norðurorku til að mæta þörfum stækkandi samfélags.

Nú er það okkar að koma auga á fleiri tækifæri til uppbyggingar á Eyjafjarðarsvæðinu sem byggja á aðgangi að raforku og að hrinda þeim í framkvæmd. Þarna má nefna uppbyggingu á Akureyri til að geta boðið raforku til skemmtiferðaskipa og annarra skipa, uppbyggingu á Dysnesi til að styrkja öryggisinnviði landins og þjónusta vaxandi umsvif á Grænlandi og í Norður-Atlantshafi, landeldi á laxi, ylrækt, ferðaþjónustu, og fleira. Og auðvitað þarf heilmikla raforku til orkuskipta almennt í samgöngum á landi, sjó og jafnvel lofti.

Andri Teitsson er bæjarfulltrúi fyrir L-Listann á Akureyri og skipar 5. sæti listans í komandi kosningum.

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Freistað með okkar eigin peningum

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
07. ágúst 2026 | kl. 15:00

Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?

Halldór Jörgen Olesen skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 15:00

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Þorvaldur Gylfason skrifar
04. ágúst 2026 | kl. 12:30