Körfubolti: Þórsarar enn án sigurs í 1. deild
Þór tapaði í þriðja skiptið í jafnmörgum leikjum í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Breiðablik úr Kópavogi sótti Þórsara heim og munurinn á endanum 16 stig, 88-104.
Gestirnir náðu forystunni eftir nokkrar mínútur og héldu frumkvæðinu út fyrsta leikhlutann, bættu svo heldur við í öðrum leikhluta og höfðu 14 stiga forystu eftir fyrri hálfleikinn. Þar munaði mestu um framlag Adrians McIntyre, sem skoraði 22 stig í fyrri hálfleiknum.
Þegar síga fór á þriðja leikhlutann má segja að gestirnir hafi endanlega klárað leikinn, en fram yfir miðjan leikhlutann var munurinn um og yfir tíu stig. Góður sprettur Blika í lok leikhlutans skilaði þeim 22 stiga forskoti fyrir lokafjórðunginn. Þegar leið á lokafjórðunginn var munurinn orðinn 28 stig, en með áhlaupi í lokin minnkuðu Þórsarar muninn aftur niður í fjórtán stig.

Allra augu á Blika númer tvö, Adrian McIntyre, enda var hann langöflugastur í liði gestanna, skoraði 22 stig í fyrri hálfleiknum og 30 samtals. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.
Eins og í fyrri leikjum Þórs í haust var Jalen Green stigahæstur, skoraði 29 stig. Páll Nóel Hjálmarsson kom næstur með 15 stig. Adrian McIntyre var öflugastur í liði Blika, skilaði 30 stigum, sjö fráköstum og sex stoðsendingum.
Þór og Skallagrímur eru í botnsætum deildarinnar, bæði án sigurs í fyrstu þremur leikjum sínum, en Snæfell er einnig án sigurs, hefur leikið tvo leiki.
Þór - Breiðablik (19-24) (24-33) 43-57 (17-25) (28-22) 88-104
Helsta tölfræði leiksins, stig/fráköst/stoðsendingar:
Þór
Jalen Green 29/6/3, Páll Nóel Hjálmarsson 15/1/1, Hlynur Ingi Finnsson 9/2/2, Justin Andrew 8/3/3, Pétur Cariglia 8/1/0, Baldur Örn Jóhannesson 4/9/1, Axel Arnarsson 4/4/5, Arngrímur Friðrik Alfreðsson 3/2/0, Helgi Hjörleifsson 2/6/0, Bergvin Ingi Magnússon 2/2/2, Hjálmar Helgi Jakobsson 2/1/0, Andri Már Jóhannesson 2/0/0.
Breiðablik
Adrian McIntyre 30/7/6, Hugo Ivan Catani 20/4/1, Orri Guðmundsson 13/4/1, Viktor Máni Steffensen 12/2/2, Einar Örvar Gíslason 9/5/0, Eysteinn Bjarni Ævarsson 6/5/4, Vojtéch Novák 5/7/1, Veigar Elí Grétarsson 5/4/0, Freyr Jökull Jónsson 3/4/3, Jökull Otti Þorsteinsson 1/0/0.
Næst:
Þórsarar fá stutta hvíld eftir þennan leik því strax á laugardag er komið að leik í bikarkeppninni, 32 liða úrslitum. Lið Sindra frá Hornafirði kemur þá til Akureyrar, en Hornfirðingar fóru upp úr 1. deildinni í vor.
- Laugardagur 17. október kl. 16:00
Bikarkeppnin, 32 liða úrslit
Þór - Sindri
Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna
Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað
Fróðlegir fundir í kjördæminu