Fara í efni
Umræðan

Komast málefni eldri borgara ekki á dagskrá?

Vilborg Gunnarsdóttir birti grein í Vikublaðinu á dögunum undir nafninu Bergmálshellir frambjóðenda þar sem hún spyr hvernig standi á því að málefni eldra fólks komist ekki á dagskrá ungu frambjóðendanna? Við getum sannarlega tekið undir hvatningu Vilborgar, enda full ástæða til að ræða málefni eldra fólks af meiri krafti, sama á hvaða aldri við erum.

Málefni sem Framsókn hefur haft frumkvæði að á kjörtímabilinu

Við þökkum hvatninguna og viljum nýta tækifærið til að fara yfir þau mál sem við, bæjarfulltrúar Framsóknar á Akureyri, höfum beitt okkur fyrir þegar kemur að málefnum eldri borgara á þessu kjörtímabili. Okkar áhersla hefur verið skýr: Að eldri íbúar búi við gott aðgengi að þjónustu, geti tekið þátt í öflugu félagslífi við viðunandi aðstæður og að nægt framboð sé af húsnæði sem hentar öllum.


Áherslur næsta kjörtímabils

Á næsta kjörtímabili viljum við tryggja að málin sem við höfum þegar lagt fram fái raunverulega eftirfylgni. Eins leggjum við áherslu á að samþætta alla þjónustu og gera hana heildstæðari. Það er orðið mjög brýnt að samþætta félags-, dags- og heilbrigðisþjónustu og við viljum vera leiðandi á landsvísu. Þetta er hægt, en gerist ekki af sjálfu sér.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson eru bæjarfulltrúar Framsóknar á Akureyri.

Indverskur matur og kvíðaspurningin

Inga Dagný Eydal skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna

Þóroddur Bjarnason skrifar
07. október 2026 | kl. 15:00

Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
06. október 2026 | kl. 13:00

Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað

Díana Jóhannsdóttir og Örlygur Hnefill Örlyggson skrifa
05. október 2026 | kl. 15:00

Fróðlegir fundir í kjördæminu

Sigurjón Þórðarson skrifar
05. október 2026 | kl. 07:15

Öflugt atvinnulíf þarf gott aðgengi að lóðum

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
30. september 2026 | kl. 20:15