Fara í efni
Umræðan

KA/Þór mætir Fram – SA Víkingar gegn Fjölni

Agatha Kjærbæk Djurhuus og liðsfélagar hennar í KA/Þór taka á móti Fram í dag. Mynd: KA. Heiðar Gauti Jóhannsson, aðstoðarfyrirliði SA Víkinga, verður væntanlega í eldlínunni með liði sínu gegn Fjölni síðdegis. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Mögulega verður boðið upp á markaveistlu í Skautahöllinni á Akureyri í dag þegar SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar, tekur á móti Fjölni í Toppdeild karla í íshokkí. Á dagskránni er einnig handboltaleikur sem átti að fara fram í gær, en var frestað. KA/Þór tekur á móti Fram.

  • Eftir tvo sigra hjá KA/Þór í röð, þá fyrstu sem liðið náði á leiktíðinni, kom fjögurra marka tap fyrir Selfyssingum í 8. umferð Olísdeildar kvenna um síðastliðna helgi. KA/Þór tekur á móti Fram í dag í 9. umferð deildarinnar. Fram vann ÍR með sjö marka mun í síðasta leik sínum. KA/Þór er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig, en Fram í því fjórða með tíu stig.
  • SA Víkingar eru í efsta sæti Toppdeildarinnar með 16 stig að loknum átta leikjum. Reykjavíkurliðin hafa leikið einum leik minna, SR með 14 stig og Fjölnir 12 stig úr sjö leikjum. SA Víkingar taka á móti liði Fjölnis í dag. Síðast þegar þessi lið mættust, á Ofurhelginni í Laugardalnum undir lok október, buðu liðin upp á markaveislu, samtals 14 mörk þar sem SA sigraði, 8-6.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 9. umferð
    KA-heimilið kl. 14
    KA/Þór - Fram

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - Fjölnir

Tenerife í stað Kaupmannahafnar – eru áherslurnar réttar?

Þórhallur Jónsson skrifar
10. nóvember 2026 | kl. 15:45

Icelandair ætti að horfa norður

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 19:30

Mikilvæg skref í átt að samþættingu þjónustu við eldri borgara

Guðbjörg Anna Björnsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 12:30

Framtíð, atvinna og velferð í verki

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
05. nóvember 2026 | kl. 11:00

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20