KA-Þór í flóðljósum á laugardagskvöldi
Leikur KA og Þórs í neðri hluta Bestu deildarinnar í knattspyrnu verður laugardagskvöldið 19. september á heimavelli KA. Samkvæmt fyrstu niðurröðun átti hann að vera daginn eftir.
Liðin mættust í Bestu deildinni í lok júlí á nýjum gervigrasvelli KA. Framkvæmdum við áhorfendastúku og tengt húsnæði er ekki að fullu lokið en undanþága fékkst þá hjá KSÍ og Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, staðfestir að viðureignin eftir 10 daga verði á sama stað. Akureyringum verður þá boðið upp á fyrsta „alvöru“ leikinn í flóðljósum og óhætt að gera ráð fyrir því að stemningin verði mögnuð á svæðinu.
Keppni í neðri hluta Bestu deildarinnar hefst næsta sunnudag þegar Akureyrarfélögin leika bæði á útivelli; KA gegn FH í Hafnarfirði og Þór gegn Val í Reykjavík.
Nágrannaslagurinn er viku síðar en að þeirri umferð lokinni verður gert hvorki meira né minna en þriggja vikna hlé vegna landsleikja í Þjóðadeildinni. Þriðja umferðin af fimm verður 10. október og sú síðasta laugardaginn 24. október.
- Sunnudag 13. september 14.00
FH - KA
Valur - Þór
Stjarnan - ÍBV
- Laugardag 19. september 19.30
KA - Þór - Sunnudag 20. september 16.00
ÍBV - Valur
FH - Stjarnan
- Laugardag 10. október
Stjarnan - KA
Þór - ÍBV
Valur - FH
- Laugardag 17. október 14.00
Þór - Stjarnan
Valur - KA
ÍBV - FH
- Laugardag 24. október
KA - ÍBV
FH - Þór
Stjarnan - Valur
Gerum betur!
Það að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting
Hönd í hönd niður um deild?
Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa