Fara í efni
Umræðan

KA og KA/Þór í 5. flokki unnu Norden Cup

Stelpurnar í 5. flokki KA/Þórs, ásamt Heimi Erni Árnasyni þjálfara, eftir sigurinn í úrslitaleiknum. Mynd: norden-cup.se.

Lið KA/Þórs í 5. flokki stúlkna og lið KA í 5. flokki drengja í handknattleik gerðu sér lítið fyrir í morgun og unnu gullverðlaun á Norden Cup í Svíþjóð. Bæði lið tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum eftir mikla baráttu og báru síðan sigur úr býtum í úrslitum gegn sænskum andstæðingum.

Stelpurnar í KA/Þór unnu norskt lið í 8-liða úrslitunum og svo danskt lið í undanúrslitunum. Úrslitaleikurinn var gegn sænska liðinu Önnereds HK og þar tókst þeim akureyrsku að tryggja sér sigur eftir framlengdan leik og þar með Norden Cup meistaratitilinn í 5. flokki. Staðan var jöfn 17:17 eftir venjulegan leiktíma en í KA/Þór réði ferðinni í framlengingunni og lokatölur urðu 21:17.  Mörk KA/Þórs: Steinunn Heimisdóttir 7, Maríanna Gunnþórsdóttir 3, Elsa Egilsdóttir 3, Hildur Birta Stefánsdóttir 3, Sunna Kristinsdóttir 2, Arney Steinþórsdóttir 1, Lydia Ragnarsdóttir 1, Julia Heinesen 1. 

KA-strákarnir unnu auðveldan sigur á norsku liði í undanúrslitum en leikurinn í 8-liða úrslitunum var mun erfiðari og þar vannst naumur sigur, 20:19, gegn dönskum andstæðingum. Sænska liðið Kärra HF var síðan andstæðingurinn í úrslitaleiknum. Eftir jafnan og spennandi leik voru það KA-drengirnir sem lönduðu 18:16 sigri og unnu þar með Norden Cup meistaratitilinn í 5. flokki. Markahæstur hjá KA í úrslitaleiknum var Hermann Guðlaugsson með 9 mörk, Andri Haddsson skoraði 5, Fannar Kristinsson 3 og Jaki Ragnarsson 1. 

KA-strákarnir, ásamt þjálfaranum Andra Snæ Stefánssyni, kampakátir eftir sigurinn í úrslitaleiknum. Mynd: norden-cup.se.

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00

Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
01. mars 2026 | kl. 17:00

Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag

Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 18:00