Blak: KA lagði Völsung í nágrannaslag
KA tók á móti Völsungi í nágrannaslag í efstu deild kvenna í blaki í gær. Gestirnir bitu vel frá sér í leiknum en KA náði þó að landa 3:1 sigri, sem er afar mikilvægur fyrir tvær síðustu umferðirnar í deildarkeppninni.
Fyrsta hrinan var jöfn framan af en í stöðunni 13:12 tóku KA-stelpur góðan sprett og kláruðu hrinuna 25:17. Völsungur náði hins vegar að jafna leikinn með 25:21 sigri í annarri hrinu, þar sem sömuleiðis var jafnræði með liðunum lengst af. KA náði aftur forystunni með 25:19 sigri í þriðju hrinunni og heimastúlkur virtust ætla að ganga frá leiknum í fjórðu hrinu þegar staðan var orðin 21:12. En þá tóku gestirnir við sér, minnkuðu muninn jafnt og þétt og KA tók leikhlé þegar aðeins munaði einu stigi, 24:23. Það skilaði sér, því þær náðu síðan að skora síðasta stigið og vinna hrinuna 25:23 og leikinn þar með 3:1.
Nú er 18 umferðum af 20 lokið í Unbroken-deildinni og KA er einu stigi á eftir HK, sem er í efsta sætinu. Liðin mætast tvívegis í Kópavogi um næstu helgi og þá ræðst það hvort KA nær að verja deildarmeistaratitilinn eða hvort bikarinn verður eftir í Kópavogi.
Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi
Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn
Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag
Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga