Fara í efni
Umræðan

Heimaleikir í handbolta og blaki í kvöld

Boltinn byrjar að rúlla þessa vikuna með tveimur heimaleikjum í kvöld. Þórsarar taka á móti nýkrýndum bikarmeisturum Hauka í efstu deild karla í handbolta og KA tekur á móti grönnum sínum frá Húsavík í efstu deild kvenna í blaki. Brátt dregur til tíðinda í báðum deildunum.

Barist við að forðast fall

Karlalið Þórs í handbolta náði sér í mikilvæg stig í baráttunni um að forðast fall úr Olísdeildinni með sigri á Selfyssingum í 19. umferðinni. Fram undan eru þrjár æsispennandi umferðir þar sem litlu munar á liðunum í 8.-11. sætinu. HK er með 12 stig, Þór og Selfoss með 11, Stjarnan 10 og ÍR sjö. Eitt þessara liða mun ná inn í úrslitakeppnina og því eftir talsverðu að slægjast í lokaumferðunum, fyrir utan það að forðast fall- og umspilssætin, 11.-12. sæti.

Þórsarar taka á móti Haukum í kvöld, sækja síðan Aftureldingu heim og taka svo á móti KA í lokaumferð deildarinnar.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:30
    Þór - Haukar
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Haukar unnu fyrri leik þessara liða í Hafnarfirði í nóvember, 35-31.

Spennandi endasprettur í blakinu

Kvennalið KA í blaki á enn nokkuð góða möguleika á að vinna deildarmeistaratitilinn í Unbroken-deildinni. Liðið er þó fjórum stigum á eftir HK, en á leik til góða, heimaleik gegn Völsungi á miðvikudag. Úrslitin í deildinni ráðast síðan væntanlega um komandi helgi þegar KA mætir HK tvívegis í Digranesi í Kópavogi.

  • Unbroken-deild kvenna í blaki
    KA-heimilið kl. 20
    KA - Völsungur
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00

Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
01. mars 2026 | kl. 17:00

Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag

Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 18:00

Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga

Heimir Örn Árnason skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 11:30

Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga

Stefán Þór Stefánsson skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 10:10