Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn
Nýverið var kynntur listi frambjóðenda fyrir Viðreisn á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. Um er að ræða tímamót, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram lista í sveitarstjórnarkosningum í sveitarfélaginu. Þetta markar mikilvægt skref fyrir Viðreisn, sem hingað til hefur einkum verið talin tengdur við höfuðborgarsvæðið. Flokkurinn hefur þó litið á sig sem landsflokk með skýra sýn á stjórnsýslu, lýðræði og samkeppnishæft atvinnu‑ og þjónustuumhverfi um allt land.
Framboð flokksins á Akureyri staðfestir einmitt það og þá þróun sem hefur verið að eiga sér stað síðustu misseri, að íbúar á landsbyggðinni kalla eftir skýrum, gagnsæjum og ábyrgum stjórnmálum þar sem fagmennska, þjónusta og samráð við íbúa eru í forgrunni. Með því að stíga inn á vettvang sveitarstjórnarmála norðan heiða sýnir Viðreisn vilja sinn til að takast á við þau fjölbreyttu og oft flóknu viðfangsefni sem Akureyri stendur frammi fyrir, hvort sem það snýr að þjónustu við fjölskyldur, skipulagsmálum, fjármálum bæjarins eða atvinnuþróun til framtíðar.
Akureyri er vel rekið sveitarfélag en alltaf má gera gott enn betra. Bærinn er einstakur að mörgu leyti og býður íbúum upp á lífsgæði sem jafnast á við það sem finnst í stærri borgum. Við eigum hér sterkan háskóla, frábær útivistarsvæði, ómetanlega skíðaparadís, flugvöll, fjölbreyttar verslanir og öflugt atvinnulíf. Á þessum sterku stoðum bæjarins er hægt að byggja enn frekar.
Hvaða leiðir viljum við fara til að tryggja að bærinn verði áfram þungamiðja norðurlands, svæðisborg og aðdráttarafl fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og ungt fólk?
Nýsköpun og framtíðarmöguleikar
Akureyri hefur alla burði til að verða leiðandi í nýsköpun á landsvísu. Háskólinn er lykilstoð og við getum nýtt hann enn betur með því að hlúa að tengingum milli menntunar, fyrirtækja og sveitarfélagsins. Ef við viljum laða að ungt fólk, fagfólk og skapandi greinar, þá þurfum við að fjárfesta í innviðum sem styðja hraða þróun. Það þýðir, m.a.:
- að styrkja og auka samstarf háskóla, atvinnulífs og bæjarins,
- að tryggja hentugt húsnæðisframboð fyrir ungt fólk og sérfræðinga,
- að styðja við frumkvöðla og smærri fyrirtæki með sterkum vaxtarmöguleikum,
- að tryggja stafræna þjónustu.

Nýsköpun snýst ekki bara um tækni, hún snýst um hugsun, lausnir og að hafa kjark til að breyta. Hún snýst um að horfa á bæinn út frá öðru sjónarhorni og spyrja: Hvað getum við gert betur? Hvað geta bæjarbúar gert betur í sameiningu?
Aðdráttarafl bæjarins, fólk flytur þangað þar sem þeim líður vel og lífið er gott
Akureyri þarf einnig að vera bær sem laðar fólk til sín. Það gerist m.a. með:
- fjölskylduvænni þjónustu,
- tryggu, öruggu og fyrirsjáanlegu leikskóla- og skólaumhverfi,
- öflugum íþrótta- og tómstundakostum,
- góðum samgöngum og aðgengi.
Fólk velur sér heimili þar sem fyrirsjáanleiki ríkir og þar sem þörfum þeirra er mætt. Þar sem það finnur að stjórnsýslan vinnur með því ekki gegn því. Þar sem það finnur að bærinn er í þróun, ekki stöðnun.
Að byggja sterka byggð — sérhæfð störf og fólk heim úr námi
Akureyri ber að vera leiðandi þegar kemur að byggðastefnu og framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni. Við þurfum að skapa aðstæður þar sem sérhæfð störf blómstra og þar sem menntað fólk sér raunhæfa framtíð sýna fyrir sér, ekki aðeins í styttri tíma eða sem tímabundna viðkomu heldur sem varanlegt heimili fyrir sig og sína fjölskyldu.
Það er þjóðhagslega mikilvægt og samfélagslega rétt, að ungt fólk geti flutt í heimahaga eftir nám erlendis eða á höfuðborgarsvæðinu og fundið á norðurlandi tækifæri sem krefjast þekkingar, sköpunar og nýrrar hugsunar.
Það þarf markvisst að vinna að því að fjölga sérhæfðum störfum í greinum eins og:
- heilbrigðisþjónustu og stoðgreinum,
- verkfræði, tækni og hugbúnaði,
- rannsóknum, líftækni og skapandi greinum,
- stafrænum lausnum og framtíðartækni,
- nýsköpun tengdri sjávarútvegi, orkumálum og loftslagi.
Til þess þurfa ríkið, bæjarfélag, háskólasamfélag og atvinnulíf að vinna þéttar og markvissara saman. Með öflugri samvinnu má byggja upp störf sem skapa meiri fjölbreytileika og verðmæti, halda í hæft fólk og laða að nýja íbúa og um leið skapa jákvæð hringrásaráhrif fyrir Norðurland.
Þegar ungt fólk sér að bærinn býður bæði upp á hagsæld, lífsgæði og atvinnu sem menntun þeirra nýtist, þá verður Akureyri fyrsta val í stað þess að vera valkostur númer tvö eða þrjú.
Húsnæði og skipulag – lykillinn að sjálfbærum vexti
Akureyri þarf skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn í húsnæðismálum, hvort sem um er að ræða íbúðabyggð, atvinnuhúsnæði eða sérhæfðar lausnir fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Með góðu skipulagi minnkum við ferðatíma, bætum loftgæði og sköpum bæ sem er bæði líflegur, vistvænn og aðlaðandi.
Samráð og gagnsæi – grunnur trausts
Engin breyting verður farsæl nema hún sé unnin í samstarfi við alla helstu hagsmunaaðila, þ.e. ríkið, íbúa, félagasamtök, atvinnulífið og sveitarfélagið. Bærinn þarf að efla samráð þar sem virðing, jafnrétti, traust ríkir. Gagnsæi og fagleg vinnubrögð skapa traust, og traust er forsenda þess að Akureyri vaxi og dafni og beri nafngiftina „höfuðstaður norðurlands“ með sóma.
Framtíðarsýn og boð um samstarf
Framboð Viðreisnar á Akureyri er ekki einungis framboð til kosninga, heldur líka skýrt boð um samstarf. Það er boð til íbúa um að taka þátt í að móta næstu skref bæjarins og boð til atvinnulífs og stofnana um að efla tengsl og vinna að sameiginlegri framtíðarsýn þar sem tækifæri Akureyrar eru nýtt til fulls.
Það er ekki nóg að segja að Akureyri eigi að vera góður bær, við berum ábyrgð á að gera það sem þarf til að hann verði enn betri. Bær þar sem einstaklingar og fjölskyldur búa við öryggi og fjölbreytni, þar sem ungt fólk sér framtíð fyrir sér, þar sem nýsköpun og þekking styrkja atvinnulífið og þar sem stjórnsýslan er fagleg, ábyrg og þjónustumiðuð.
Viðreisn á Akureyri vill leggja áherslu á gagnsæi, fagmennsku og raunhæfar lausnir. Við viljum hlusta, ræða og vinna úr mismunandi sjónarmiðum, því samfélag sem byggir á samtali er samfélag sem er í þróun og býr til varanlegar lausnir.
Akureyri, höfuðstaður norðurlands á skilið metnaðarfulla framtíðarsýn og stjórnmál sem hafa hugrekki til að framkvæma það sem þarf, þegar þarf. Með sameiginlegu átaki getum við tryggt að bærinn haldi áfram að vaxa og dafna, að framtíð Akureyrar verði í senn öflug, fjölbreytt og sjálfbær.
Viðreisn á Akureyri er tilbúið að leggja sitt af mörkum, með ábyrgum stjórnmálum, heiðarleika og vilja til að vinna fyrir bæjarbúa.
Akureyri á skilið pólitík sem byggir á faglegum grunni, lausnum og raunverulegum vilja til að gera betur. Viðreisn á Akureyri er tilbúið og hlakkar til að vinna í þágu íbúa bæjarins.
Halla María Sveinbjörnsdóttir situr í stjórn fyrir Viðreisn á Akureyri
Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga
Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga
Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur
Íþróttahús á félagssvæði Þórs