Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi
Samstarf Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar og skólaþjónustu Norðurþings hefur skilað sér í styttri bið eftir sálfræðiþjónustu fyrir börn og fjölskyldur í sveitarfélaginu.
Skólaþjónusta er í dag veitt á grundvelli laga um grunnskóla nr. 91/2008 og laga um leikskóla nr. 90/2008. Frumvarp til laga um inngildandi menntun sem nú bíða þess að vera afgreidd á Alþingi munu leysa þessi lög af hólmi. Í því frumvarpi er skólaþjónustu skipt í þrjá hluta. Fyrst skal nefna innri skólaþjónustu sem er allur stuðningur sem veittur er í innra starfi skólans. Ytri skólaþjónusta er síðan sú þjónusta sem veitt er af skólaþjónustu sveitarfélaga, oftast á skólaskrifstofum eða þjónustumiðstöðvum. Að lokum má nefna Landsteymi á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) en hægt er að leita til teymisins þegar fyrrnefnd þjónusta hefur ekki skilað nægilegum árangri. Markmið frumvarpsins er meðal annars að tryggja öllum börnum aðgengi að þjónustu sama hvar á landinu þau búa. Þjónustan skal vera þrepaskipt þar sem þess er gætt að gæðaþjónusta sé veitt á öllum stigum. Ákvörðun um aukinn stuðning við barn skal byggja á gögnum sem safnað er innan skólans í daglegu starfi og með ýmis konar skimunar tækjum sem skólar og skólaþjónusta búa yfir. Þetta eru tæki sem kortleggja vel stöðu nemenda og veita innsýn í hverjar þarfir þeirra eru.
Í Norðurþingi var lengi vel erfitt að manna skólaþjónustuna þannig að stöðugleiki héldist og hægt væri að einbeita sér að snemmtækri íhlutun fyrir nemendur. Ýmsar leiðir hafa verið farnar en lendingin varð sú að finna verktaka sem veitt gætu gæðaþjónustu í nánu samstarfi við sveitarfélagið, skólana og starfsfólk skólaþjónustunnar. Innan skólaþjónustunnar starfa yfirsálfræðingur og kennsluráðgjafi í föstu starfi, auk talmeinafræðings á verktakasamningi.
Norðurþing hefur átt í samstarfi við Heilsu- og sálfræðiþjónustuna síðastliðin tvö ár. Í gegnum samstarfið hefur stofan sinnt sálfræðilegum athugunum barna á leikskóla- og grunnskólaaldri, atferlisgreiningu og ráðgjöf á vegum skólaþjónustu sveitarfélagsins.
Heilsu- og sálfræðiþjónustan veitir heilbrigðisþjónustu með áherslu á greiningar, viðtalsmeðferð og ráðgjöf í þverfaglegu teymi fyrir alla aldurshópa. Fagfólk stofunnar þjónustar Norðausturland með starfsstöð á Akureyri og veitir einnig fjarþjónustu fyrir fólk óháð staðsetningu. Á stofunni starfa sálfræðingar, félagsráðgjafar, geðhjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, klínískur atferlisfræðingur, fjölskyldufræðingar, ljósmóðir, mannauðssérfræðingur og skrifstofustjóri.
Sveitarfélagið hefur því haft aðgang að fjölbreyttum hópi fagfólks vegna skólamála og vinnustaðaþjónustu. Barnasálfræðingur og klínískur atferlisfræðingur mæta mánaðarlega til Húsavíkur til að sinna greiningum og ráðgjöf. Þetta er í fyrsta skipti sem skólaþjónusta Norðurþings hefur reglubundinn aðgang að atferlisfræðingi.
Ávinningur fyrir börn, fjölskyldur og sveitarfélagið
Með samstarfinu hefur tekist að stytta biðtíma barna eftir sálfræðiþjónustu verulega og er hann nú í styttra lagi samanborið við sambærilega þjónustu annars staðar. Með styttri biðtíma er hægt að grípa fyrr inn í vanda barna og styðja við skólastarf á markvissan hátt. Það dregur úr álagi á skóla og fjölskyldur og stuðlar að betri líðan og langtímaárangri fyrir börnin.
Heilsu-og sálfræðiþjónustan hefur starfað í nánu og farsælu samstarfi við skólaþjónustu Norðurþings og hefur sýnt að samvinna sveitarfélags og sérfræðiþjónustu getur styrkt innviðið velferðarþjónustu. Samstarfið hefur verið lausnamiðað og byggt á sameiginlegri sýn um að mæta þörfum barna og fjölskyldna af virðingu og fagmennsku.
Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag
Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga
Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga
Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur