Fara í efni
Umræðan

Hvernig byggð vilt þú á tjaldsvæðisreitnum?

Akureyrarbær hefur auglýst kynningarfund sem verður á fimmtudaginn, um tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti þar sem stefnt er að því að verði blönduð íbúðabyggð með nýrri heilsugæslustöð og annarri þjónustu.

Akureyringar hafa mjög mikinn áhuga á skipulagsmálum ef dæma má viðbrögð við fréttum Akureyri.net um málaflokkinn. Því er full ástæða til að vekja athygli á fundinum. Hann verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 17.00. Gengið inn um aðalinngang að sunnanverðu. Allir eru velkomnir á fundinn.

Á fundinum kynna skipulagshönnuðir fyrirhugaða skipulagsvinnu og í kjölfarið verður boðið upp á hugmyndavinnu í umræðuhópum.

Í skipulagslýsingu segir m.a.: „Viðfangsefni skipulagsvinnunnar er m.a. að skilgreina uppbyggingu blandaðrar byggðar á svæðinu, almenningsrýma og dvalarsvæða. Skilgreind verða markmið um gæði byggðar, fyrirkomulag gatnakerfis og bílastæða, legu göngu- og hjólastíga, tengingar við nærliggjandi þjónustu, útivistar- og dvalarsvæði ásamt öðrum þeim ákvæðum og skilmálum sem ástæða þykir til.“

Með gerð skipulagsins á að leggja grunn að hagkvæmri nýtingu lands, blöndun byggðar, vistlegum dvalarsvæðum og almenningsrýmum, góðum tengslum við nærliggjandi umhverfi og þar með umhverfi sem styður við virkan lífsstíl, eins og það er orðað. „Skipulaginu er ætlað að stuðla að sjálfbæru og umhverfisvænu skipulagi með heildstæðu yfirbragði í sátt við umhverfi og samfélag."

Treystir Viðreisn þjóðinni í raun?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
15. desember 2025 | kl. 10:00

Hvað þarf að gerast til að stórauka framboð íbúða og lækka verðið?

Benedikt Sigurðarson skrifar
13. desember 2025 | kl. 11:30

Braskvæðing almannagæða – fúsk og græðgi

Benedikt Sigurðarson skrifar
12. desember 2025 | kl. 08:00

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Húsnæðisbóla

Benedikt Sigurðarson skrifar
11. desember 2025 | kl. 10:00

Eftir Hrun

Benedikt Sigurðarson skrifar
10. desember 2025 | kl. 13:00