Fara í efni
Umræðan

Vilja Hrísalund 1-5 sem blandaða byggð

Svona gæti blokk með verslun og þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum sem kæmi í stað núverandi byggingar Brauðgerðar Kristjáns litið út. Skjáskot úr umsókn f.h. Hrísalundar ehf. til skipulagsráðs.

Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi vegna svæðis meðfram Þingvallastræti sem nær frá íþróttasvæði KA vestur að Skógarlundi þannig að svæðið verði skilgreint sem miðsvæði*. Upphaf málsins tengist sölu á húseignum Brauðgerðar Kristjáns Jónssonar að Hrísalundi 3 og áformum um byggingu íbúðablokkar með verslun og þjónustu á jarðhæð á þeirri lóð. 

Hugmynd Hrísalundar ehf., samkvæmt vinnslutillögu sem skipulagsráð fjallaði um í mars, gerir ráð fyrir sex hæða blokk með kvöð um verslun og þjónustu á jarðhæð, og samtals 29 íbúðum á hæðum 2-6. Umsókn Ingólfs Freys Guðmundssonar fyrir hönd Hrísalundar ehf. gekk út á breytingu á aðalskipulagi sem nær til lóðarinnar Hrísalundar 3, en skipulagsráð, um leið og það tók jákvætt í erindið, taldi ástæðu til að horfa til stærra svæðis sem næði einnig til lóðanna Hrísalundar 1a, 1b og 5, eða svæðisins milli Hrísalundar og Þingvallastrætis, frá íþróttasvæði KA vestur að Skógarlundi.

Í skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi sem unnið var fyrir Akureyrarbæ var miðað við svæðið lengra til vesturs og innihélt einnig Viðjulund 2a og 2b (sjá mynd), en sá hluti er ekki tekinn með í afgreiðslu skipulagsráðs heldur aðeins lóðirnar 1, 3 og 5 við Hrísalund, frá íþróttasvæði KA að Skógarlundi, eins og áður sagði.

Loftmynd sem sýnir staðhætti, gul brotin lína sýnir það svæði sem sett er fram í skipulagslýsingu sem unnin var fyrir Akureyrarbæ, en í afgreiðslu skipulagsráðs er aðeins miðað við svæðið að rauðu línunni, það er að Skógarlundi. 

Fjallað var um upphaflegu umsóknina og hugmyndir Hrísalundar ehf. í frétt á akureyri.net 25. mars:


* Miðsvæði í skipulagi er skilgreint svo í skipulagsreglugerð: „Svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjónar heilu landsvæði, þéttbýlisstað eða fleiri en einu bæjarhverfi, svo sem verslanir, skrifstofur, þjónustustofnanir, hótel, veitinga- og gistihús, menningarstofnanir og önnur hreinleg atvinnustarfsemi sem talin er samræmast yfirbragði og eðli starfsemi miðsvæðis.“

Hvað þýðir Já fyrir bændur?

Stefán Magnússon skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 17:30

Viltu minni verðbólgu og lægri vexti?

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 09:40

Hvað sparar Akureyrarbær með upptöku evru? Svar: um 400 mkr á ári

Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
16. ágúst 2026 | kl. 10:30

„Þúsund þorskar á færibandinu ...

Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
13. ágúst 2026 | kl. 17:00

Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?

Þóroddur Bjarnason skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00

Stærð þjóðar

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
12. ágúst 2026 | kl. 06:00