Handbolti: Fyrsti sigurinn hjá KA/Þór
KA/Þór vann 32:28 sigur á Stjörnunni í 6. umferð efstu deildar kvenna í handknattleik, Olís-deildinni, í KA-heimilinu í dag. Sigurinn var bæði kærkominn og nauðsynlegur, því liðið hafði tapað fyrstu fimm leikjunum en lyfti sér af botninum með þessum sigri.
KA/Þór skoraði fyrsta mark leiksins og liðið bætti jafnt og þétt í forskotið eftir því sem leið á fyrri hálfleik. Mestur varð munurinn 6 mörk en gestirnir náðu örlítið að klóra í bakkann og staðan í leikhléi var 17:13 KA/Þór í vil.
Slæmur kafli í seinni hálfleik
Framan af seinni hálfleik var KA/Þór enn með öll tök á leiknum og þegar um 10 mínútur voru liðnar af hálfleiknum munaði sjö mörkum á liðunum, 26:19. En þá hrökk allt í baklás. Sóknarleikurinn hafði verið hraður og frísklegur en allt í einu fór allt að ganga á afturfótunum og leikmenn virtust ekki vita sitt rjúkandi ráð í sókninni. Stjörnunni óx ásmegin og þær skoruðu átta mörk gegn tveimur á rúmlega 10 mínútna kafla. Munurinn allt í einu aðeins eitt mark, 28:27, og ennþá rúmar 7 mínútur til leiksloka.
En lukkudísirnar snerust þá aftur KA/Þór í vil og næstu tvö mörk voru heimakvenna, auk þess sem Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir varði frá Stjörnunni á mikilvægu augnabliki. Lydía Gunnþórsdóttir innsiglaði síðan sigurinn með tveimur síðustu mörkum leiksins af vítalínunni og langþráður sigur í höfn hjá KA/Þór.
Fimm lið í hnapp í neðri hlutanum
Úrslitin þýða að núna eru þrjú lið með tvö stig og tvö lið með fjögur stig í neðstu fimm sætunum og ljóst að þau geta öll unnið hvert annað. Það er því mikilvægt fyrir KA/Þór að halda áfram að ná stigum gegn liðunum í kringum sig. Að afloknu komandi landsleikjahléi er næsti leikur liðsins einmitt gegn öðru liði sem hefur líka einn sigur eftir fyrstu sex leikina. Það er viðureign á útivelli gegn HK, þann 30. október.
Mörk KA/Þórs: Lydía Gunnþórsdóttir 10 (9 víti), Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 7, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 7, Joan Rúnadóttir Johannessen 4, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Lenka Ratvajská 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.
Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 7, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Inga Maria Roysdóttir 10, Valgerður Elín Snorradóttir 7 (6 víti), Sunna Katrín Hreinsdóttir 3, Vigdís Arna Hjartardóttir 3, Erla Sif Leósdóttir 2, Fruzina Nagy 2, Trude Blestrud Håkonsen 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 4, Sara Schröder Winde 4.
Réttlát kjördæmaskipan og ofríki stærðfræðinganna
Mikilvægi endurhæfingar í hvetjandi og náttúrulegu umhverfi
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað
Fróðlegir fundir í kjördæminu