„Getum unnið öll lið og ætlum okkur góða hluti“
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, á von á spennandi sumri í efstu deild kvenna í knattspyrnu og telur að deildin hafi aldrei verið jafnari en í ár. Árangur liðsins í fyrra hafi ekki verið viðunandi og þó að spárnar fyrir mótið geri margar hverjar ráð fyrir að Þór/KA verði á svipuðum slóðum í ár þá er markmiðið sett hærra.
Fyrsti leikur Þórs/KA í Íslandsmótinu er í dag kl. 16 þegar liðið tekur á móti FH á nýja gervigrasvellinum á Þórssvæðinu.„ Tilhlökkun og spenna – búin að vera löng bið eftir fyrsta leik og bara mikil tilhlökkun að byrja í dag,“ svarar Alli þegar hann er spurður hvernig sumarið leggist í hann. „Við erum með gott lið og tilhlökkun að byrja á móti FH sem er aldeilis spáð góðu gengi,“ bætir hann við.
Getum unnið öll lið
Flestir spámenn gera ráð fyrir að Breiðablik verði Íslandsmeistari og að FH lendi í öðru sæti. Alli er ekki sannfærður um að þessi lið muni skara fram úr öðrum. „Núna áður en mótið byrjar er auðvelt að tala um bæði þessi lið og vænta mikils af þeim. En ég held að deildin hafi aldrei verið jafnari og það er ekkert gefið í þessu. Hvorki fyrir okkur eða þau lið sem er spáð ofar í deildinni, þannig að þetta verður mjög spennandi,“ segir hann. „Við lítum svo á að við getum keppt við öll lið og ef við getum keppt við öll lið þá getum við unnið öll lið. Fyrir vikið ætlum við okkur góða hluti, það er ekki spurning,“ segir Alli þegar hann er spurður um markmið sumarsins.
Alli tók við þjálfun liðsins eftir síðasta tímabil en þá endaði Þór/KA endaði í 7. sæti deildarinnar. Margir spámenn vilja meina að það sæti verði einnig hlutskipti liðsins í ár. Alli segir að það sé fyrst og fremst þeirra að afsanna þá spádóma, þegar hann er spurður hvaða breytingar muni fylgja nýjum manni í brúnni. „Númer eitt, tvö og þrjú var niðurstaðan í fyrra ekki ásættanleg fyrir lið eins og Þór/KA. Okkur er spáð sömu niðurstöðu í ár og það er fyrst og fremst okkar að afsanna það. Að sama skapi eru nokkrar breytingar á leikmannahópnum og við erum aðeins að breyta hlutverkum hjá einstaka leikmönnum og aðeins kannski leikstílnum,“ segir hann.
Hafa náð að stækka og breikka leikmannahópinn
„Þó að það sé mikið til sömu leikmenn í hópnum, þá erum við aðeins að horfa í það sem þarf mögulega að laga frá í fyrra og reyna að verða betri,“ segir Alli og segir aðspurður að staðan á hópnum sé nokkuð góð í upphafi sumars. „Það eru margir leikir á stuttum tíma í byrjun eins og tíðkast á Íslandi, að byrja á hraðmóti, og við þurfum að hafa stóran og góðan hóp. Það er eitthvað sem við teljum okkur hafa náð að gera í vetur – að stækka hópinn af leikmönnum sem geta tekið stórt hlutverk í liðinu,“ segir Alli Jói að lokum.
Þarfir eldri borgara í Akureyrarbæ í forgang
Börn eiga rétt á því sem virkar
Verk að vinna
Börnin okkar kalla - hver er að hlusta?