Fara í efni
Umræðan

Geðrækt í tali og tónum í gulri messu í kvöld

Mynd: Þorgeir Baldursson

Akureyrar- og Glerársóknir standa saman að messu í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Um ræðir gula messu, sem hluta af vitundarvakningunni Gulur september.

Á meðal þess sem er á dagskránni er hugleiðing aðstandanda, en þar talar Tinna Arnar, móðir Ólafar Töru Harðardóttur, baráttukonu sem lést fyrir tæpum tveimur árum. „Það væri yndislegt að sjá ykkur sem flest í Gulu messunni í Akureyrarkirkju í kvöld kl 20. ... Ég er svo óendanlega þakklát henni Tinnu fyrir að koma og deila sinni sáru reynslu en miklu visku,“ skrifar séra Hildur Eir Bolladóttir í hvatningarorðum til fólks um að mæta í messuna í kvöld.

Auk þess mun Birgir Örn Steinarsson, sálfræðingur Píeta, koma fram og verður hans framlag bæði í tali og tónum. Þá munu Ívar Helgason og Pétur Nói Stefánsson einnig sjá um tónlistina. Prestar verða þau séra Hildur Eir Bolladóttir og séra Sindri Geir Óskarsson. Á eftir er gestum boðið í kaffi og afmælistertu í safnaðarheimili Akureyrarkirkju í tilefni af 10 ára afmæli Píeta og fimm ára afmæli Píetaskjólsins hér á Akureyri.
 
Vitundarvakningin Gulur september snýst um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir, þar sem lögð er áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15