Fara í efni
Umræðan

Glerárkirkja: Arnhildur ráðin tónlistarstjóri

Arnhildur Valgarðsdóttir hefur verið ráðin til starfa í Glerárkirkju, sem tónlistarstjóri, organisti og kórstjóri kirkjunnar. Arnhildur hefur störf 1. október næstkomandi.

„Arnhildur er reynd kirkjutónlistarkona, hún er píanisti, organisti og kórstjóri og hefur undanfarin ár starfað sem organisti og kórstjóri við Guðríðarkirkju í Reykjavík. Auk kirkjustarfsins hefur hún starfað sem undirleikari, tónlistarmaður og kennari og komið víða við í íslensku tónlistarlífi,“ segir í tilkynningu frá Glerárkirkju.

„Arnhildur er fædd og uppalin á Akureyri, dóttir Dómhildar Sigurðardóttur frá Draflastöðum í Fnjóskadal og Valgarðs Egilssonar læknis, rithöfundar og leiðsögumanns. Hún á því sterkar rætur hér fyrir norðan hlakkar til að snúa aftur heim.

Við hlökkum til að bjóða Arnhildi velkomna til starfa og erum þess fullviss að reynsla hennar, fagmennska og metnaður muni verða Glerárkirkju og öflugu tónlistarstarfi hennar til blessunar. Við óskum henni hjartanlega til hamingju með ráðninguna og erum spennt að fá hana í hús.“

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15