Fara í efni
Umræðan

„Þetta er tónlist sem er skrifuð til að gleðja“

Michael Jón Clarke stjórnar Hljómsveit Akureyrar á tónleikum í Glerárkirkju á síðasta ári. Mynd: Þorgeir Baldursson

Hljómsveit Akureyrar efnir til stærstu tónleika sinna frá upphafi þegar hún heldur Vínargleði í Glerárkirkju næsta laugardagskvöld,  5. september kl. 20:00.

Michael Jón Clarke stjórnar hljómsveitinni sem fyrr og hún hefur verið stækkuð sérstaklega fyrir þetta tilefni, enda segir stjórnandinn að hin fræga Vínartónlist krefjist síns fulla hljóms.

„Á efnisskránni er allt það besta og vinsælasta frá Vínarborg – iðandi valsar, fjörugir polkar og ástríðufullir óperettusöngvar,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni. „Á meðal hápunkta kvöldsins eru ódauðlegu valsarnir Dóná svo blá og Þrumu og eldinga polkinn eftir Strauss-fjölskylduna, hinn hrífandi Radetzky-mars, perlur úr óperettum eftir Franz Lehár og rómantískir hápunktar eftir Tchaikovsky.“

Einn fremsti þríhornaleikari samtímans

Hljóðfæraleikarar hafa aldrei verið fleiri sem fyrr segir, Michael Jón segir fimm af fremstu söngvurum Norðurlands koma fram með hljómsveitinni og fiðlusólóisti sé hinn frábæri Martin Frewer. Þá upplýsir stjórnandinn að sérstakur gestur á tónleikunum „verði alþjóðlega virtur þríhornaleikari, Maestro Fagiolo Triangolini. Triangolini, sem víða er talinn fremsti þríhornaleikari samtímans og hefur komið fram með stærstu hljómsveitum heims, mun koma fram á miðju prógrammi með glæsibrag – það má enginn missa af því.“

Söngvararnir eru:

  • Gísli Rúnar Víðisson
  • Guðrún Ösp Sævarsdóttir
  • Hlini Jón Gíslason
  • Margrét Árnadóttir
  • Rósa María Stefánsdóttir

„Þetta er tónlist sem er skrifuð til að gleðja,“ segir Michael Jón Clarke, stjórnandi hljómsveitarinnar. „Við viljum fylla Glerárkirkju af Vínargleði – léttleika, rómantík og húmor; með stærstu hljómsveit sem við höfum nokkurn tíma haft, Martin Frewer á fiðlu, fimm af fremstum söngvurum Norðurlands og auðvitað Maestro Triangolini verður þetta veisla sem Akureyri hefur ekki séð áður.“


VÍNARGLEÐI
Hljómsveit Akureyrar | Stjórnandi: Michael Jón Clarke
Laugardaginn 5. september kl. 20:00 | Glerárkirkja
Miðasala á tix.is og við dyrnar.

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15