Fara í efni
Umræðan

Orgeltónar til styrktar viðgerð orgelsins

Pétur Nói Stefánsson við orgelið í Akureyrarkirkju. Hann hóf nýlega störf sem organisti og leikur á tónleikum í kirkjunni á morgun. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Orgeltónleikar verða í Akureyrarkirkju á morgun, laugardag 24. október. Pétur Nói Stefánsson nýráðinn organisti leikur þá verk eftir fimm ólíka meistara, eins og hann orðar það. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.00, aðgangseyrir er 2.500 kr. og tónleikarnir eru haldnir í þeim tilgangi að safna fé vegna viðgerðar á orgelinu sem stendur fyrir dyrum.
 
„Ég mun leika verk eftir fimm ólíka meistara sem allir höfðu mikil áhrif á tónsmíðar fyrir orgelið. J. S. Bach (barokk), Max Reger (þýsk síðrómantík), César Franck (frönsk rómantík), Louis Vierne (frönsk síðrómantík) og Jón Nordal (móderník) en hann hefði orðið 100 ára í ár. Með því að hafa svona fjölbreytta dagskrá er hægt að sýna tónleikagestum fram á hvað orgelið býr yfir mörgum hljóðheimum,“ segir Pétur Nói við akureyri.net.
 
„Orgelið í Akureyrarkirkju hefur því miður þörf á talsverðum endurbótum og viðgerðum,“ segir organistinn. „Hvers vegna? Það er einfaldlega aldurinn og notkunin sem hefur mikið um það að segja en orgelið var upprunalega byggt af Steinmeyer & Co. árið 1961 og endurbyggt af P. Bruhn & Søn árið 1995. Síðan þá hefur orgelið verið brúkað mikið við messu- og tónleikahald, sem og upptökur og margt fleira.“
 
Pétur Nói segist vilja leggja sitt af mörkum sem organisti kirkjunnar til að halda þessu hljóðfæri við til næstu ára. „Ég kem ferskur úr námi í Reykjavík þar sem ég lagði stund á kirkjutónlistarnám við bæði Listaháskóla Íslands og Tónskóla Þjóðkirkjunnar og síðar einleiksnám á orgelið. Þar sem ég fæ að æfa mig á hljóðfæri kirkjunnar daglega þykir mér sjálfsagt mál að skella í eina einleiks tónleika. Líka bara svona til að halda mér við ...“ segir hann.
 
Pétur Nói hyggst endurtaka leikinn 20. desember þegar hann leikur á öðrum styrktartónleikum vegna viðgerðar orgelsins. 

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00

Brú yfir byggðaföllin eða mjaltavél Icelandair?

Þóroddur Bjarnason skrifar
26. október 2026 | kl. 17:30

Loftbrúin má ekki missa flugið

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
23. október 2026 | kl. 17:15