Fara í efni
Umræðan

Fiskideginum mikla frestað annað árið í röð

Ljósmynd: Bjarni Eiríksson

Fiskideginum mikla hefur verið frestað annað árið í röð og 20 ára afmæli hátíðarinnar bíður því enn um sinn.

„Eins og margir vita þá var Fiskidagurinn mikli 20 ára í ágúst 2020 en hátíðinni var frestað vegna kórónuveirunnar. Á stjórnarfundi Fiskidagsins mikla 29. mars s.l. var tekin ákvörðun um að fresta Fiskideginum mikla aftur og að fréttatilkynning yrði send út 15. apríl sem er sami dagur og við tilkynntum frestunina 2020. Ákvörðinin er tekin að vel ígrunduðu máli. Við stefnum ótrauð á afmælishátíð í ágúst 2022,“ segir í tilkynningu í morgun.

„Fiskidagurinn mikli er þannig uppbyggður að við getum aldrei stjórnað fjölda þeirra gesta sem sækja okkur heim, við getum ekki skipt upp í hólf, ekki haft fjarlægðarreglur, og svo framvegis. Fiskidagurinn mikli sem er matarhátíð er ekki haldinn fyrr en grímunum hefur verið sleppt og ótakmarkaður gestafjöldi leyfður og að gestir geti knúsast áhyggjulaust að hætti Fiskidagsins mikla svo að fátt eitt sé nefnt. Það kostar mikla vinnu að skipuleggja svona stóra hátíð og óvissan er of mikil til þess að leggja af stað í þetta stóra verkefni. Við tökum enga áhættu og sýnum ábyrgð í verki, við teljum að það verði ekki kominn timi til að safna saman 30.000 manns eftir 3 mánuði.“

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00

Akureyri – höfuðstaður Norðurlands með framtíðarsýn

Halla María Sveinbjörnsdóttir skrifar
01. mars 2026 | kl. 17:00

Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag

Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 18:00

Skólastarf Akureyrarbæjar styrkt með farteymi sérfræðinga

Heimir Örn Árnason skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 11:30

Gervigreind – lykillinn að hagræðingu sveitarfélaga

Stefán Þór Stefánsson skrifar
26. febrúar 2026 | kl. 10:10