Þúsund Þórsleikir í deildakeppninni
Þórsarar léku sannkallaðan tímamótaleik síðastliðinn sunnudag þegar þeir mættu Skagamönnum á Akranesvelli í átjándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.
Þetta var eitt þúsundasti leikur félagsins í deildakeppninni, allt frá því Þór lék í fyrsta skipti með sjálfstætt lið árið 1975, eftir að lið ÍBA var lagt niður og Akureyrarfélögin tvö hófu bæði keppni í gömlu 3. deildinni, sem samsvarar 2. deild í dag.
Fyrsti deildaleikur Þórs fór fram á Blönduósi 7. júní 1975 þar sem Akureyrarliðið vann nauman sigur á heimamönnum í Ungmennasambandi Austur-Húnavatnssýslu (USAH), 1-0. Óskar Gunnarsson skoraði sigurmarkið.

1975 – Óskar Gunnarsson, til hægri, gerði fyrsta mark Þórs í deildakeppninni – í fyrsta leik liðsins á Íslandsmótinu, gegn USAH á Blönduósvelli 7. júní 1975. Sigurður Lárusson, til vinstri, var í Þórsliðinu þann dag en svo skemmtilega vildi til að sonur hans, Lárus Orri, stýrði liði Akurnesinga um síðustu helgi í þúsundasta deildarleik Þórs. Lárus Orri lék bæði með Þór og þjálfaði liðið eins og faðir hans. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Óhætt er að segja að það hafi verið upphafið að ágætis sigurgöngu því á næstu 15 mánuðum vann Þórsliðið 21 af fyrstu 26 leikjum sínum í deildakeppninni og tapaði aðeins einum, 1-0 gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í fyrstu umferð 2. deildarinnar (1. deild í dag), og hafði haustið 1976 tryggt sér sæti í efstu deild. Leikirnir níu í 3. deildinni 1975 unnust allir og sá síðasti þeirra, úrslitaleikur deildarinnar gegn KA, endaði með 4-0 sigri Þórs að viðstöddum 1.300 áhorfendum á Akureyrarvelli. Leiða má líkum að því að það sé enn í dag áhorfendamet í þriðju efstu deild hér á landi.
Sigrarnir 20 fleiri en töpin
Af þeim 1.000 leikjum sem Þór hefur nú leikið í þremur efstu deildum Íslandsmótsins hefur félagið unnið 405, gert 210 jafntefli og tapað 385 leikjum. Markatalan er 1.584 mörk skoruð og 1.574 mörk fengin á sig.
Á milli deilda skiptast leikirnir þannig að leikurinn á Akranesi á sunnudaginn var númer 336 í efstu deild en flestir leikjanna eru í 1. deild, 619, og fæstir í 2. deild, 45 talsins.

30% allra deildaleikja Þórs! – Ármann Pétur Ævarsson, fyrir miðri mynd, er sá Þórsari sem hefur spilað flesta deildaleiki fyrir félagið – alls 294 af 1000. Hér fagnar hann sigurmarki sínu (3:2) á lokaandartökunum gegn KA í B-deild Íslandsmótsins 22. júlí 2009; í vígsluleik Þórsvallar eftir gagngerar endurbætur á svæðinu. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Ármann með í 30 prósent leikjanna
Ármann Pétur Ævarsson er sá Þórsari sem hefur leikið flesta deildaleiki fyrir félagið á þessum ríflega 50 árum en hann lék 294 leiki í tveimur efstu deildunum á árunum 2002 til 2019 og spilaði aldrei með öðru félagi. Hann hefur því tekið þátt í tæplega 30 prósent leikja Þórs. Þessir tíu eru leikjahæstir í deildaleikjum fyrir Þór en fyrirliði liðsins í dag, markvörðurinn Aron Birkir Stefánsson, komst í hóp tíu efstu fyrr á þessu tímabili og jafnaði í dag metin við Júlíus Tryggvason í 7. til 8. sætinu.

Frá vinstri: Sigurður Marinó Kristjánsson 243 leikir – Nói Björnsson 250 leikir – Jóhann Helgi Hannesson 250 leikir – Hlynur Birgisson 268 leikir.
- 294 Ármann Pétur Ævarsson, 2002-2019
- 268 Hlynur Birgisson, 1985-1994 og 2001-2008
- 250 Jóhann Helgi Hannesson, 2007-2021
- 250 Nói Björnsson, 1977-1991
- 243 Sigurður Marinó Kristjánsson, 2007-2017 og 2019-2022
- 218 Sveinn Elías Jónsson, 2009-2020
- 190 Júlíus Tryggvason, 1983-1994 og 2000-2001
- 190 Aron Birkir Stefánsson, 2016-2026
- 180 Halldór Áskelsson, 1983-1988, 1991-1993, 1996-1998 og 2000-2001
- 178 Árni Stefánsson, 1976-1987

Frá vinstri: Árni Stefánsson 178 leikir – Halldór Áskelsson 180 leikir – Júlíus Tryggvason 190 leikir– Aron Birkir Stefánsson 190 leikir – Sveinn Elías Jónsson 218 leikir.
KA lék þúsundasta leikinn í fyrra
KA og Þór hófu keppni á sama tíma í gömlu 3. deildinni árið 1975 en KA er samt með nokkuð forskot á Þór í leikjafjölda, spilaði sinn þúsundasta deildaleik á síðasta ári, gegn ÍBV í 18. umferð Bestu deildarinnar, og lék sinn 1.027. deildaleik gegn FH á dögunum.
Munurinn á Akureyrarfélögunum liggur að stórum hluta í því að eftir að leikjum í Bestu deildinni var fjölgað úr 22 í 27 fyrir nokkrum árum lék KA samtals 20 leikjum meira en Þór á árunum 2022 til 2025. Þá nægði Þórsurum að leika níu leiki til að vinna 3. deildina árið 1975 á meðan KA þurfti að fara í flókið umspil og spila alls 16 leiki áður en sæti í 2. deild var í höfn.
- Nánar verður fjallað um 1.000 leikja tímamótin hjá KA á morgun.
Yrði Evrópusambandið bjargvættur eða bölvaldur landsbyggðanna?
Stærð þjóðar
Freistað með okkar eigin peningum
Hvað gæti ESB gert fyrir Norðurland?